Um Einar
Um Einar
Einar Kristinn Guðfinnsson, fimmti þingmaður Norðvesturkjördæmis er fæddur í Bolungarvík 2. desember árið 1955 og er því 53 ára. Hann er sonur hjónanna Guðfinns Einarssonar fyrrverandi forstjóra sem nú er látinn og konu hans Maríu K. Haraldsdóttur húsmóður. Eiginkona Einars er Sigrún J. Þórisdóttir lengst af kennari, en nú starfsmaður SP Fjármögnunar og hann á þrjú börn. Guðfinn Ólaf viðskiptafræðing, Sigrúnu Maríu háskólanema og Pétur nema.
Nám og störf
Eftir að hafa lokið stúdentprófi frá Menntaskólanum á Ísafirði árið 1975 úr öðrum árgangi sem þaðan útskrifaðist, lá leiðin á ritstjórnarskrifstofur dagblaðsins Vísis, sem þá var undir ritstjórn Þorsteins Pálssonar síðar formanns Sjálfstæðisflokksins. Þau ár voru viðburðarík, enda margt að gerast á fjölmiðlamarkaðnum um þær mundir, svo sem stofnun Dagblaðsins – DB, og aukin fjölmiðlaharka í tengslum við hið kunna Geirfinnsmál. Haustið 1977 settist ég á skólabekk við Essex háskóla í Bretlandi og lauk stjórnmálafræðiprófi árið 1980 . Ég gerði hlé á náminu skólaárið 1979/80 þegar alþingiskosningar brustu óvænt á og eftir því var leitað við mig að ég kæmi heim og blandaði mér í slaginn. Þann vetur settist ég í fyrsta sinn á þing, í hálfan mánuð. Þetta var örlagaríkur tími, því einmitt þá kynntist ég Sigrúnu, sem síðar varð eiginkona mín. Að loknu námi mínu í Bretlandi snerum við Sigrún til Bolungarvíkur, þar sem ég vann við skrifstofustörf og síðar útgerðarstjórn hjá fyrirtækjum Einars Guðfinnssonar hf., en Sigrún sneri sér að kennslu en vann þó um skeið á skrifstofunni hjá EG hf.
Störf á Alþingi
Vorið 1991 var ég kosinn á Alþingi og sat þá í fjárlaganefnd, félagsmálanefnd og landbúnaðarnefnd. Í kosningunum árið 1995 leiddi ég framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum að loknu fjölmennu prófkjöri og varð eftir þær kosningar fyrsti þingmaður Vestfirðinga sem ég var þar til kjördæmið var lagt niður. Bak kosningum 1995 var ég valinn til formennsku í samgöngunefnd Alþingis og sat þá jafnframt í félagsmálanefnd. Kjörtímabilið 1999-2003 var ég lengst af formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, en um áramótin 2002/2003 tók ég við formennsku í efnahags og viðskiptanefnd. Jafnframt lét ég af formennsku í sjávarútvegsnefndinni, en sat þar áfram Alþingis, auk þess að sitja í efnahags og viðskiptanefnd og í utanríkismálanefnd Alþingis og var formaður kjörbréfanefndar.
Á því kjörtímabili sem hófst við kosningarnar 10 maí 2003 settist ég síðan í utanríkismálanefnd og sjávarútvegsnefnd og var áfram formaður kjörbréfanefndar. Árið 1998 var ég kjörinn í stjórn þingflokks Sjálfstæðisflokksins og tók svo við formennsku á fundi þingflokksins 22. maí 2003 og gegndi því starfi fram til 26. september 2005, daginn áður en ég tók við starfi sjávarútvegsráðherra. Þegar ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var mynduð vorið 2007 varð ég einnig landbúnaðarráðherra og gegndi þessum embættum til 1. febrúar 2009 þegar minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs var mynduð.
Auk þessara starfa á Alþingi hef ég verið fulltrúi Alþingis á þingum Alþjóðaþingmannasambandsins IPU, fyrst á árinu 1991. Þegar Geir H. Haarde varð fjármálaráðherra árið 1998 tók ég við formennsku í Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins. Frá árinu 2001 var ég einnig formaður einnar af fjórum meginnefndum sambandsins, nefndar um efnahags-, viðskipta - og félagsmál. Breytingar urðu á skipulagi IPU árið 2003 og á þingi þess í Santíagó í Chile, var ég kjörinn formaður einnar af helstu nefndum Alþjóðaþingmannasambandins að mér fjarstöddum. Það gerðist svo vorið 2002 að þing IPU kaus mig til þess að vinna skýrslu um fjármögnun þróunarverkefna. Sú skýrsla var rædd og afstaða tekin til hennar á þingi IPU í Genf. Var skýrslan samþykkt eftir fjörugar og á tíðum hörkuumræður, þar sem ég sat fyrir svörum frammi fyrir fulltrúum ríflega eitt hundrað þjóðþinga. Þá var ég á árinu 2001 formaður nefndar um málefni Mið Austurlanda á þingi IPU í Marrakesh í Marokkó. Það var mikil lífsreynsla, að reyna að berja saman sameiginlegt álit þar sem í nefndinni sátu meðal annars fulltrúar Palestínuaraba og Ísraels.
Félagsstörfin
Auk starfa minna hef ég tekið þátt í margþættu félagsstarfi. Má segja að það hafi byrjað fyrir alvöru við Menntskólann á Ísafirði með formennsku í málfundafélaginu, ég sat í stjórn skólafélagsins, stjórn skólans, sem fulltrúi nemenda og var í margvíslegu öðru félagsstarfi. Árin 1975 – 1977 sat ég í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna, þar sem í formennsku var þá Friðrik Sophusson síðar varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Ætli ekki megi segja að það sem upp úr því starfi standi, hafi verið vinnan að merkilegri stefnumótun, sem við kölluðum Báknið burt. Gáfum við meðal annars út blað sem dreift var um land allt þar sem sjónarmið okkar voru kynnt og ritstýrði ég því blaði. Á árunum 1982 til 1990 var ég formaður Fræðsluráðs Vestfjarða og um líkt leyti formaður skólanefndarinnar í Bolungarvík. Vesturland blað vestfirskra sjálfstæðismanna og ég höfum verið samferða í mörg ár. Fyrst á árunum 1977 til 1991 þegar ég ritstýrði blaðinu, en síðan hef ég oftlega annast útgáfu jólablaðs Vesturlands auk þess að ritstýra einstaka blaði, eins og tími hefur unnist til. Fyrsta tölublaðið sem ég ritstýrði kom út á meðan ég var enn ungur menntaskólanemi. Meðritstjórar mínir voru þeir Arnór Sigurjónsson nú sendifulltrúi í Utanríkisráðuneytinu og Sigurður Grímsson nú kvikmyndagerðarmaður
Á þeim tíma sem ég vann sem útgerðarstjóri sat ég um tíma í stjórn og var í samninganefndum fyrir Útvegsmannafélag Vestfjarða og sótti nokkur þing LÍÚ. Fulltrúi á Fiskiþingi var ég árið 1985 og til 1991 og stjórnarformaður Fiskifélags Íslands 1994 – 1998. Í stjórn Byggðastofnunar sat ég árið 1995 til 2001. Formaður byggðanefndar forsætisráðherra var ég árin 1998 til 1999. Í Hafnarráði sat ég frá árinu 1999 til 2003 og var formaður Ferðamálaráðs Íslands frá vorinu 2002, þar til ég tók við starfi sjávarútvegsráðherra þann 27. september 2005 og vorið 2007 varð ég einnig landbúnaðarráðherra.
Frá árinu 2004-2007 var ég í nefnd sem Davíð Oddsson þáverandi forsætisráðherra skipaði um Evrópumálefni og mótun stefnu í þeim málum. Afrakstur nefndarinnar má sjá í viðamikilli skýrslu.
