Pistlar

Þeir sem ættu að keppa safna bara spiki

9.3.2005

Það er engin verðbógla á Íslandi. Sennilega erum við nær verðhjöðnun. Ef við undanskiljum hinar miklu hækkanir á húsnæðisverði á höfuðborgarsvæðinu, mælist engin verðbólga. Og í rauninni ættum við að sjá verðlækkun á helstu neysluvörum og innflutningsverðlagi. Því veldur ólukkans gengisþróunin.

En það gerist ekki. Innflutningurinn hefur ekki lækkað eins og tilefni er til. Verðlagið er ekki að lækka í takt við gengishækkunina. Skyndiverðstríð stórmarkaðanna er eina alvöru merkið sem við sjáum um virka verðsamkeppni á neysluvörum. Aðrir sitja eftir og safna spiki. Við hljótum að kalla eftir samkeppninni.

Hvað þýðir þetta fyrir útflytjendur?

Fréttirnar af gjaldeyrismörkuðunum eru hræðilegar. Dollalrinn er komin undir 60 kallinn og evran undir 80 krónur. Gengisvísitalan undir 110 krónur. Bandaríkjadalur hefur ekki farið undir 60 krónum frá árinu 1992 og Evran ekki verið svona veik gagnvart krónunni frá árinu 2001.

Og til frekari fróðleiks: Krónan hefur stykst um 9 prósent gagnvart evrunni á einu ári og um 15 prósent gagnvart bandaríkjadal. Þetta er ekkert smávegis.

Þetta þýðir að nú fá útflytjendur að öðru jöfnu 9 kr. minna fyrir afurðir sínar hafi þeir flutt út til evrulanda, og 15 kr. minna flytji þeir út til Bandaríkjanna. Þetta þýðir líka að menn eru að fá jafn mikið fyrir afurðir sínar á bandaríkjamarkaði og fyrir 14 árum, en hafa orðið að taka á sig innlendar verðlagshækkanir, t.d hráefnis -og launahækkanir á sama tíma. Það sjá allir að þetta getur ekki gengið.

Neytandi gerðist neitandi

Þess vegna er það svo furðulegt að samkeppnin birtist okkur ekki nema á takmörkuðum sviðum. Slíkt hlýtur í senn að benda á fákeppni eða að lífskjarabatinn hafi orðið svo mikill að neytendur knýji ekki á um lækkun á vörutegundum sem fluttar eru inn frá útlöndum.

Hvað með bílana, fatnaðinn eða aðrar þær neysluvörur sem fólk er að kaupa. Hvers vegna mælist slíkt ekki í lækkuðu verðlagi svo um munar? Athyglisverð var svo þögn Jóhannesar neytendafrömuðar þegar Geir H. Haarde fjármálaráðherra vakti athygli á að víninnflytjendur lækkuðu ekki varning sinn, þrátt fyrir að öll efni stæðu til þess. Þá gerðist sjálfur Jóhannes yfir-neytandi einfaldlega NEITANDI; hann tjáði sig ekki, lagði fjármálaráðherranum ekki lið. Það var nú ekki góð frammistaða hjá Jóhannesi.

Frelsið er yndislegt

Frelsið er yndislegt, er sungið í lagi og texta hljómsveitarinnar Ný dönsk. Í viðskiptum haldast í hendur frelsi og samkeppni. Við höfum verið að innleiða leikreglur til þess að stuðla að samkeppni. Það hefur víða borið ríkulegan ávöxt. Það er hins vegar greinilegt að innflytjendur ýmsir hafa kosið að nýta sér skjólið sem þenslan og lífskjarabatainn er að búa til um hríð.

En það er eðli samkeppninnar að slíkt skjól varir ekki að eilífu. Snjallir kaupsýslumenn hljóta nú að sjá sér leik á borði, nýta sér lækkað innflutnignsverðlag til þess að ná til sín aukinni markaðshlutdeild með því að falbjóða vörur sínar á lægra verði; sanngjörnum prís en ekki okurverði.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica