Pistlar

Góður árangur í Norðvesturkjördæmi

14.5.2003

Árangur okkar sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæminu var mjög góður í nýliðnum kosningum. Á margan hátt voru aðstæður okkur mótdrægar. Árangurinn varð hins vegar sá að hvergi tapaði flokkurinn jafn litlu og er ótvírætt forystuafl í kjördæminu.

Ástæðurnar eru örugglega margvíslegar. Samhent barátta mjög margra frambjóðenda, almennt góð málefnastaða flokksins á landsvísu, markviss og grimmur málflutningur gegn andstæðingum okkar. Allt átti þetta sinn þátt. En eftirminnilegast var samt að finna þann gríðarlega samhug og baráttuanda sem einkenndi sjálfstæðismenn vítt og breitt um kjördæmið. Það var vissulega ógleymanlegt að hitta fyrir fjölda fólks um allt kjördæmið sem hamaðist við að vinna málum okkar framgang, tala fyrir málstaðnum og vinna alla þá vinnu sem er nauðsynleg, svo að árangur náist. Fyrir þetta stendur maður í óendanlegri þakkarskuld.

Þeir töpuðu

Ef skoðuð eru úrslitin þá er það ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvesturkjördæmi er með hæsta hlutfallið utan höfuiðborgarsvæðisins. Margir höfðu haft uppi hrakspár. Eftirstöðvar prófkjörsins skildu eftir sár og margt hafði verið okkur mótdrægt í byggðamálunum. Engu að síður varð árangurinn þessi.

Formaður Samfylkingarinnar fagnaði fræknum sigri sinna manna í kjördæminu fljótlega eftir að talning hófst. Taldi hann að það sýndi að samfylkingarmenn hefðu unnið sjávarútvegskappræðurnar við okkur sjálfstæðismenn. En nú spyrjum við að leikslokum? Er það þar með ekki alveg ljóst, að samfylkingarmenn töpuðu deilunni um sjávarútvegsmálin við okkur í ljósi síns slaka árangurs?

Fyrningarleiðin afskrifuð

Athyglisvert er að Samfylkingin bætti alls staðar við sig fylgi nema á einum stað. Í Norðvesturkjördæmi. Þar minnkaði fylgi þeirra. Þeir lögðu af stað með sína frægu fyrningarleið. Við brugðumst hart við. Ræddum þessa hugmynd á fundum, í blaðagreinum, á framboðsfundum og á vinnustöðum. Og nú liggur það fyrir. Samfylkingin tapaði. Mælt á mælikvarða formannsins er það að minnsta kosti ljóst að þeir töpuðu sjávarútvegsumræðunni.

Þar með er það ljóst að fyrningarleið að hjætti stjórnarandstæðinga hefur verið afskrifuð. Það er góð tilhugsun.

Andbrekkis

Fyrir lá að höfuðvígi Frjálynda flokksins var í Norðvesturkjördæmi. Þar höfðu þeir þegar komið sér fyrir og áttu þingmann fyrir, sjálfan flokksformanninn. Þegar það bættist við að sjávarútvegsmálin urðu eitt aðalkosningamálið í landinu - og tvímælalaust aðalkosningamálið hjá okkur - gátum við búist við að standa nokkuð andbrekkis í baráttunni.

Þannig nálguðumst við líka þessa baráttu. Við fórum í umræður um málatilbúnað Frjálslyndra, sýndum fram á veikleika, þverstæður og dellumakaríið í málflutningnum og réðumst til atlögu. Sýnilega hefur þetta borið árangur. Það sýnir árangur okkar

Góður árangur nú og þá

Allt lýtur þetta að hinu sama. Árangur okkar var góður. Við getum staðið keik. Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið gott veganesti frá íbúum í Norðvesturkjördæmi. Heildarniðurstaðan í kjördæmunum þremur sem nú mynda kjördæmið var líka góð í kosningunum fyrir fjórum árum, mælt á sögulegan kvarða. Það að halda svo vel hlut okkar nú er þeim mun ánægjulegra.

Fyrir þetta erum við frambjóðendur þakklát og munum hér eftir sem hingað til vinna af alefli í þágu byggðanna okkar með hagsmuni landsins alls að leiðarljósi.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica