Pistlar

Öflugur fundur - öflugt starf

10.3.2003

Félag ungra sjálfstæðismanna stofnuð í Hriflu

Það var einkar ánægjulegt að vera viðstaddur stofnfund Miðgarðs félags ungra sjálfstæðismanna í Viðskiptaháskólanum í Bifröst, sl. fimmtudag. Fundurinn var gífurlega fjölsóttur. Sátu hann líklega 80 til 100 manns. Ekki leyndi sér baráttuandinn og stemmingin var góð. Þarna var ég í góðum hópi ungs fólks, nemenda og starfsfólks á Bifröst, auk þess sem mættir voru á staðinn fulltrúar úr SUS og sjálfstæðisfélaga úr Borgarfirðinum.

Menn höfðu á orði að skemmtilegt væri að hugsa til þess að félagið var stofnað í sal Viðskiptaháskólans, sem Hrifla heitir, í virðingarskyni við frumkvöðulinn sjálfan Jónas Hriflu; og hefði líklega einhvern tíma þótt tíðindum sæta að félag ungra sjálfstæðismanna væri stofnað að Hriflu. En svona er þetta. Tímarnir breytast og ekkert er sem var.


Stjórn félagsins skipar vösk sveit ungs fólks: Birgir Stefánsson formaður, Birgitta Hrund Káradóttir varaformaður, Sigríður Anna Harðardóttir ritari, Jóhann Snorri Sigurbergsson gjaldkeri og Valgeir Jens Guðmundsson meðstjórnandi.

Sagan hefur dæmt

Það voru einmitt breytingar sem komu upp í hugann er ég sat þarna á þessum góða og fjölmenna fundi. Íslenska þjóðfélagið hefur verið að breytast og framfarir hafa orðið miklar. Þessar breytingatíma höfum við sjálfstæðismenn leitt undir forystu formanns okkar Davíðs Oddssonar. Við höfum aukið frelsið til athafna og búið vel að atvinnulífinu, sem aftur hefur gert það að verkum að lífskjör hafa batnað. Einmitt þennan sama dag birtust tölur um að lífskjör á íslandi hefðu batnað helmingi hraðar en í OECD ríkjunum og vitaskuld miklu hraðar en í blessuðum Evru-löndunum; hinu fyrirheitna svæði Samfylkingar og einhverra framsóknarmanna..

Þetta er ekki tilviljun. Þetta er afrakstur af stefnumótuninni sem hefur verið að skila okkur betra Íslandi. Ég vakti einmitt athygli á því í ræðu sem ég flutti á Bifröst hvernig stjórnskipulagið ræður því hversu vel eða illa þjóðum vegnar. Pólland er auðugt af náttúruauðlindum og var kallað matarkista Evrópu. Eistland var jafn ríkt Danmörku fyrir síðari heimsstyrjöld. Pólverjar og Eistlendingar voru ofurseldir kommúnismanum eftir stríð. Þegar þeir gátu brotið af sér það ok voru þessar þjóðir örsnauðar, á meðan að Íslendingar og önnur lönd í Norður Ameríku og Vestur Evrópu blómguðust. Það var vegna þess að við skipulögðum okkar þjóðféög á grundvelli markaðsbúskapar, en hinir á grundvelli sósíalismans. Sagan hefur dæmt markaðsbúskapnum í hag, sósíalismanum í óhag. Það þarf ekki frekari vitnanna við. Sagan hefur dæmt og talsmenn ríkisforsjár reyndust hafa á röngu að standa.

Valfrelsi - líka á sviði náms

En það var fleira sem kom upp í hugann. Skólinn á Bifröst er sjálfur mikið ævintýri. Þessi gamli Samvinnuskóli er nú orðinn kraftmikill Viðskiptaháskóli, sem starfar utan höfuðborgarsvæðisins og það sem meira er; starfar utan þéttbýlis, líkt og nágrannaskólasetrið á Hvanneyri. Þetta er ótrúlegt ævintýri.

Skólinn er í raun afsprengi þeirrar hugmyndafræði sem við eigum að leggja áherslu á og byggir á valfrelsi þannig að menn geti átt val á sem flestum sviðum. Einnig á sviði náms og þekkingarleitar. Þetta er stefna sem er samgróin hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins og flokkurinn hefur alltaf barist fyrir.

Bygggðirnar blómstri

Skólinn á Bifröst hefur líka kollvarpað þeirri goðsögn að námsframboð, háskólanám og rannsóknir geti einvörðungu blómgast á höfuðborgarsvæðinu. Við vitum það svo sem frá útlöndum að skólar hafa víða dafnað utan höfuðborganna. Skólauppbyggingin á Bifröst sýnir að það á líka við á Íslandi.

Fyrir íhaldsmann af landsbyggðinni sameinar þess vegna skólinn á Bifröst ánægjulega þetta tvennt. Aukið valfrelsi og uppbyggingu náms á landsbyggðinni. Nauðsynlegt er að treysta enn forsendur skólans. Svo sem með því að samþykkt verði lögmannafrumvarpið sem Alþingi hefur til meðhöndlunar. Því verður vart trúað að ekki takist að ná þessu máli fram, sem er ein forsenda fyrir eflingu skólans.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.