"Gagnvart öllu þessu stendur ríkisstjórnin sem brothætt skel; utan um ekki neitt. Lífsneistinn hefur slokknað og hún veit að erindi hennar við þjóðina er á þrotum. Hún lifir og er örugglega ekki á förum. En hún er þarna í fullkominni erindisleysu, barin áfram undir hótunum forsætisráðherrans, lífsgleðin horfin og hugsjónaneistinn slökknaður." Þannig er komist að orði í pistlinum sem hér fer á eftir þar sem farið er yfir stöðu ríkisstjórnarinnar eftir að einn hennar öflugasti liðsmaður, Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra, yfirgaf ríkisstjórnina.
Kjarni málsins er þá þessi. Ríkisstjórnin lagði fyrir Alþingi kolómögulegt mál sem langflestir þingmenn stjórnarliðsins voru þó tilbúnir að samþykkja umyrðalaust. Stjórnarandstaðan og uppreisnarmenn úr VG tóku hins vegar völdin og breyttu málinu til betri vegar; við afstýrðum í raun stórslysi. Eftir stendur hins vegar afleitur samningur sem ríkisstjórnin ein getur borið ábyrgð á. Vandamálið sem við var að glíma var ekki bara Icesavemálið sjálft, heldur ekki síður samningurinn sjálfur, sem er ljóst að var algjört klúður. Ábyrgðinni á því klúðri getur ríkisstjórnin ekki vísað á neina aðra. Ríkisstjórnin ber sjálf ábyrgð á því klúðri sínu, skuldlaust og án nokkurs vafa. Niðurstaða okkar sjáflstæðismanna að sitja hjá var því við þessar aðstæður rökrétt
Lesa meira
Hvernig sem á málin er litið voru nýliðnar kosningar sögulegar. Vinstri sveiflan er sú mesta sem við höfum séð. Sjálfstæðisflokkurinn beið sinn mesta kosningaósigur. Einn stjórnmálaflokkur þurrkaðist út og annar kom fjórum mönnum á þing. Þetta er kjarni þess máls sem fjallað verður um í þessum pistli. Farið verður yfir helstu drætti kosningaúrslitanna, annars vegar á landsvísu og síðan sérstaklega í Norðvesturkjördæmi. Loks er athyglinni beint að þeim stjórnarmyndunarviðræðum sem standa nú yfir og það fyllyrt að þær leiði til stjórnarsamstarfs
Lesa meira
Efnahagsmál, hvalveiðimál og staðan í stjórnmálunum eru meðal þess sem farið er yfir í örstuttu máli, í þessari grein, sem byggir að all nokkru á umræðunum um stefnu ríkisstjórnarinnar sem fram fór í gær, 4. febrúar.
Lokaorð þessa pistils eru eftirfarandi:
Við erum sannarlega í miklum vanda stödd. En við erum kraftmikil þjóð, með sterka innviði og höfum alla burði til að vinna okkur út úr þessum vanda. Þar munu þeir hins vegar valda, sem á halda. Þess vegna ríður á að vanda vel til verks. Ekki ganga fram með misvísandi skilaboð og kæruleysislegum útspilum sem rýra tekjumöguleika okkar og dýpka kreppuna. Við þurfum að hefja okkur upp yfir stundarríginn og sameinast um öfluga framfarasókn í þágu þjóðarinnar.