Pistlar

Notum nú rök Seðlabankans - 13.1.2008

SeðlabankinnMegin réttlæting hárra stýrivaxta Seðlabankans er hátt verðbólgustig, sem einkum hefur stafað af eignabólu á húsnæðismarkaði. Nú heyrast fréttir af minni umsvifum á þessum sviðum, sem og þeirri eignarýrnun sem við höfum orðið vitni að. Það er þekkt - og Seðlabankinn hefur á það minnt - að eignaverðshækkanir, sama hvaða nafni sem þær nefnast, feli í sér fóður fyrir verðbólgu framtíðarinnar. Þess vegna beri að hafa eignaverð og þróun þess inni í vísitöluviðmiðun þegar Seðlabankinn skoðar verðbólgumarkmiðin sín. Það hefur verið helsta réttlæting þess að menn hafa skoðað okkar eigin verðbólguviðmiðun, en ekki þær verðbólgutölur okkar sem mælast á kvarðana sem til að mynda Evrópusambandið notar. Með nákvæmlega sama hætti má því ætla að nú þegar eignir rýrna í stað þess að bólgna út þá hafi það þau áhrif að verðbólga framtíðarinnar minnki. Ef við notum því þau rök Seðlabankans sem hefur verið helsta réttlæting hárra stýrivaxta ætti það að leiða til lækkunar þeirra núna. Annað væri algjörlega órökrétt.

Lesa meira

 

Ár áfalla og átaka - 3.1.2008

2007Árið 2008 verður tímabil breytinga og tækifæra. Á starfsvettvangi mínum blasir við mikil uppstokkun vegna skipulagsbreytinga sem þar eru að verða. Það er spennandi viðfangsefni. Við munum glíma við margvíslega örðugleika vegna minni þorskafla, en einnig sjá ný tækifæri verða til. Sjálfur er ég sannfærður um að við vinnum okkur út úr erfiðleiknum. Við höfum aldrei verið í betri færum til þess og eigum að hafa það umfram allt í huga að í breytingum felast tækifæri sem við eigum að vinna úr. Þess vegna eigum við horfa bjartsýn til framtíðar. Þetta eru hluti af lokaorðum á pistli sem ég skrifaði í BB á Ísafirði að beiðni blaðsins. Var ég þar beðinn um að rifja upp minnisstæðustu atburði ársins 2007, bæði sem snertu mig persónulega, atburði innanlands og utan og hverjar væru væntingar til nýs árs. Svarið, sem birtist í nýjasta tölublaði BB getur hér að líta. Aðrir sem rituðu í blaðið af sama tilefni voru Finnbogi Hermannsson sem nýverið hefur látið af störfum sem yfirmaður Svæðisútvarps Vestfjarða, Gunnar Þórðarson verkefnastjóri Þróunarsamvinnustofnunar í Sri Lanka og fyrrverandi útibússtjóri Fiskistofu á Ísafirði og kunnur bloggari, Bergljót Halldórsdóttir kennari á Ísafirði, Guðjón A. Kristjánsson alþingismaður og formaður Frjálslynda flokksins og Anna G. Edvardsdóttir í Bolungarvík formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga. Lesa meira
 

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica