Það er eðlilegt að skiptar skoðanir séu um mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Þegar verið er að ráðstafa meira en 10 milljörðum króna er við því að búast að ýmis sjónarmið komi upp. Fyrir ríkisstjórninni vakti að veita þessu fé til stuðnings í þeim byggðarlögum og á þeim landsvæðum sem fá á sig mestu skerðingarnar vegna þorskaflaskerðingarinnar sem var ákveðin í sumar.
Mikilvægt er að reyna að stuðla að því að þessir fjármunir fari þar sem þeirra er mest þörf í byggðarlögum sem háðust eru þorskveiðum og vinnslu . Bæði þarf að bregðast sé við með skammtímaaðgerðum, til þess að mæta atvinnumissi. En síðan er verkefnið að styrkja byggðirnar til lengri tíma. Í raun að stuðla að breytingum sem gera sjávarbyggðirnar okkar betur í stakk búnar til að þess að mæta sveiflum. Kannski má segja að verið sé að reyna að breyta sjávarbyggðunum í átt að því sem gildir um þjóðfélagið okkar í heild. Ísland var afar háð sveiflum í sjávarútvegi fyrir fáeinum árum. Nú eru fleiri stoðir undir samfélaginu og það því ekki jafn næmt fyrir sveiflunum.
Það er sérkennilegt hvernig upphefð manns kemur stundum utan að. Þetta sannaðist rækilega á dögunum, þegar sárasaklaus frétt um hvalveiðar, sem hafði marg oft birst hér á landi, í innlendum fjölmiðlum varð skyndilega að stórfrétt. Þetta gerðist eftir að fréttaveitan Reuters birti fréttina, sem hafði þó orðrétt birst rífri viku áður í Viðskiptablaðinu. Í Viðskiptablaðinu hafði fréttin enga athygli vakið. En þegar sá útlenski Reuter hafði þýtt hana á tungu Engilsaxa og fleytt henni um víðáttur veitu sinnar var eins og stórtíðindi hefðu átt sér stað. Þarna varð semsé ekki frétt að heimsfrétt.
Vitaskuld var engin stefnumótun boðuð. Enda sjá allir að slíkt er ekki boðað í þýðingu Reuters á tíu daga gömlu viðtali sem lá galopið fyrir hverjum þeim sem læs var hér á landi. Þetta var með öðrum orðum algjört dómadagsrugl, þar sem hver át vitleysuna upp eftir öðrum. En svona er þetta. Upphefð manns kemur utan að; verst er þegar hún er svona óverðskulduð og algjörlega án minnsta tilefnis, eins og hver maður sér.