Pistlar

Í Grænlands fögru byggðum - 26.6.2007

NarsaqÞetta hljómar allt kunnuglega. Grænlendingar horfa til þess að geta aukið fjölbreytni atvinnulífs síns og dregið úr hlutfallslegu mikilvægi þeirra atvinnugreina sem hafa verið snarasti þátturinn í atvinnusköpuninni hingað til. Tækifærin eru vonandi handan við hornið. Það bendir nefnilega margt til þess að grænlenskt samfélag geti verið að breytast hraðar ern okkur grunar. Þetta blasti við mér í minni heimsókn til Grænlands. Heimsóknin stóð stutt og einskorðaðist við lítinn hluta þessa mikla og merka lands; granna okkar í vestri. En margt kom á óvart og einkum blasir við að grænlenskt samfélag getur verið að ganga í gegn um miklar breytingar á næstunni. Myndir úr þessari heimsókn má skoða hér. Lesa meira
 

Ábyrgðin er okkar - 4.6.2007

03Ég hvet því til og óska eftir góðu samstarfi við alla hagsmunaaðila og þá sem að þessari ákvörðun koma á komandi vikum. Ég lít ekki þannig á að þetta sé tími mikilla upphrópana eða sleggjudóma. Þetta er tími yfirvegaðrar yfirferðar þar sem við reynum að komast að sameiginlegri niðurstöðu með það að markmiði að tryggja sem best stöðu íslensks sjávarútvegs og byggðanna sem eiga líf sitt undir öflugum sjávarútvegi. Og til lengri tíma litið vegna hagsmuna þess fólks - æskunnar - sem á að erfa landið.

Þannig komst ég að orði í ræðu minni á Sjómannadaginn. Þar var ég að vísa til þeirrar vinnu sem er framundan varðandi fiskveiðiráðgjöfina. Þennan kafla ræðu minnar birti ég hér í þessum pistli í heild sinni

Lesa meira
 

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica