Pistlar

27.4.2007 : Aldarspegill sjávarútvegsins

Ægir í eina öldÆgir er í rauninni einstakt tímarit. 100 ára samfylgd hans og sjávarútvegsins skapar tímaritinu sérstöðu, af augljósum ástæðum. Með því að lesa í gegn um það sér maður sögu sjávarútvegsins í hnotskurn. Þar skrifuðu menn fyrr meir greinar til þess að vekja athygli á nýjungum á sviði sjávarútvegsins. Fræðimenn greindu okkur frá því sem helst var að gerast í hafrannsóknum og annars staðar að af vísindasviðinu. Við lásum um tíðindi úr verstöðvum, viðtöl við forystumenn og í þessu blaði talaði greinin einum rómi í gegn um heildarsamtök sín, Fiskifélag Íslands.

Lesa meira
 

21.4.2007 : Merkisdagur í samgöngumálum

ArnkötludalurVið skulum minnast síðast liðins föstudags, sem merkisáfanga í samgöngusögu okkar. Undirritun vegna vegaframkvæmdanna um Arnkötludal og Gautsdal hljóta að teljast einhver ánægjulegustu tíðindin í samgöngumálum á Vestfjörðum. Ekki síst fyrir Strandamenn. Undirritun Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra, fulltrúa Vegagerðar og verkkaupa á föstudaginn var má kannski kalla einskonar innsiglun þessa mikla framfara og gamla baráttumáls margra, ekki síst Strandamanna. Aðalatriðið er bara að vita að nú eru framkvæmdir að hefjast einhvern næstu daga. Við keyrum hina nýju leið haustið 2008 eftir svona eitt og hálft ár. Þá ökum við líka beina og breiða og malbikaða braut um Djúpið. Þannig verðum við vitni að hreinum byltingum í vegamálum á Vestfjörðum og sem munu gjörbreyta lífsskilyrðum og atvinnumöguleikum svæðisins. Tíminn líður hratt og við tökumst á við framtíðina við betri aðstæður en fyrr. Samgöngurnar skipta nefnilega svo gríðarlega miklu máli. Lesa meira
 

1.4.2007 : Skjól fyrir skoðanaleysi

AtkvæðagreiðslaStóra hættan við almennar atkvæðagreiðslur er sú að þær geri pólitískar línur óskýrar. Að smám saman standi kjósendur frammi fyrir óljósum kostum í þjóðmálum. Þetta er þekkt reynsla úr löndum þar sem menn nota þetta fyrirkomulag. Það er óhugnanlegt að vita til þess að slíkt skyldi koma fram í fyrstu atkvæðagreiðslunni sem einhver alvara var í nú síðari árin þegar kosið var um stækkun álversins í Straumsvík. Hér er ekki tekinn með í reikninginn atkvæðagreiðslan um Reykjavíkurflugvöll. Sú atkvæðagreiðsla var slíkur farsi.

Við sjáum líka að inngrip fjársterkra aðila vekur strax upp spurningar og sömuleiðis óljóst hlutverk óskilgreindra hagsmunasamtaka. Þarna geta því tekist á óskilgreindir hópar og öfl sem engum reglum lúta um fjárframlög. Allt eins og við spáðum mörg hver, meðal annars í aðdraganda umræðunnar um fjármál stjórnmálaflokkanna.

Lesa meira

 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.