
Breytingar í samfélagi okkar með tilkomu erlendra starfsmanna kalla á viðbrögð stjórnvalda. Meginatriðið er að við stóraukum íslenskukennslu, til þess að bæta aðlögun hins erlenda fólks að samfélagi okkar. Það er lykillinn. Þar ber okkur að bæta okkur, eins og nú er að gerast. Það er eðlilegt að við gerum afdráttarlausar kröfur um íslenskukunnáttu gagnvart þeim sem hyggja hér á búsetu eða á störf til lengri tíma. Þetta á ekki að vera valkvætt heldur skylda. Það er sannarlega í þágu hagsmuna hinna nýju íbúa á Íslandi að þetta sé gert og það er í þágu samfélags okkar. Þetta hefur verið afstaða stjórnvalda og henni eigum við að fylgja og fylgja henni fast eftir. Þetta kostar vitaskuld fjármagn en hvað munar okkur um það þegar við vitum að tilkoma útlendinganna inn á vinnumarkaðinn hefur búið til stóraukin verðmæti í hagkerfinu okkar. Fyrir nú utan það að slíkt styrkir samfélag okkar og styrkir samfélagsmyndina. Þannig er komist að orði í pistlinum sem hér fer á eftir og fjallar um stöðu fólks af erlendum uppruna hér á landi.
Lesa meira