Pistlar

Vilja menn þá ekki bara banna þessa atvinnustarfsemi með lögum ? - 26.10.2006

Fyrsta langreyðurin komin á landEða hvernig litist mönnum á ef ég segði; þessa tegund má veiða, en ekki þessa. Þetta vil ég friða – og af því bara. Það sjá allir fáránleikann í slíku; - nema auðvitað nokkrir íslenskir kaffihúsaspekingar. Þeir sem nú ganga harðast fram og krefjast þess að við bönnum með lögum atvinnugrein á borð við hvalveiðar og vinnslu fara í raun inn á algjörlega nýjar brautir. Þeirra krafa er um ríkisafskipti af nýrri gerð þar sem til er ætlast að stjórnmálamenn geri tiltekinn atvinnurekstur útlægan eða ólöglegan. Þannig eigi stjórnmálamenn að hafa vit fyrir almenningi og atvinnulífinu. Þetta er vitaskuld athyglisverð skoðun, en vissulega kemur það á óvart að hún rísi við upphaf 21. aldarinnar. Verði henni fylgt út í æsar getum við seint ímyndað okkur hvert hún leiðir. Í dag eru það hvalveiðarnar, en enginn veit hvert gæti orðið næsta fórnarlambið. Kannski hvalaskoðun, sú ágæta og vaxandi atvinnugrein, en við vitum að til eru þeir hópar erlendir sem álíta hvalaskoðun truflandi fyrir hvalina og að hún standi jafnvel fjölgun þeirra fyrir þrifum. Þannig komst ég meðal annars að orði í ræðu sem ég flutti hjá Landssambandi smábátamanna í dag, 26. október. Sá kafli ræðunnar sem fjallar um hvalveiðar fer hér á eftir. Lesa meira
 

Samfylkingin gerir hestamennsku að blóraböggli - 12.10.2006

Reiðhöllin Svaðastaðir í SkagafirðiÞað er fróðlegt og vekur undrun. En Samfylkingin er búin að finna blóraböggul sem hægt er að kenna um það sem miður fer í þjóðfélaginu. Jón Gunnarsson, einn talsmanna flokksins í Fjárlaganefnd Alþingis útlistaði þetta í umræðum um fjáraukalagafrumvarp ríkisstjórnarinnar í fyrradag. Össur Skarphéðinsson hinn nýkrýndi þingflokksformaður flokksins hnykkti á þessu á stórum og fjölmennum fundi SÁÁ þar sem við vorum báðir á meðal ræðumanna. Boðskapurinn er einfaldur. Burt með stuðning hins opinbera við reiðhallir og aðra aðstöðusköpun fyrir hestamenn og þannig má auka fjármuni til annarra og þarfari málaflokka. Þetta er furðulegur máflutningur sem er markaður af vanþekkingu og felur í sér - vonandi óafvitandi - spörk og pústra í garð merkilegrar æskulýðsstarfsemi sem skiptir einnig miklu máli í atvinnulegu og efnahagslegu tilliti. Um þetta er fjallað í meðfylgjandi pistli. Lesa meira
 

Góður fundur markar upphaf baráttunnar - 9.10.2006

NV-kjördæmiAðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sem við héldum um helgina var upphaf að kosningabaráttu vegna alþingiskosninganna í vor. Við ákváðum fyrirkomlag við að búa til framboðslista og mótuðum okkur stefnu á helstu málum. Í rauninni eru aðalfundir Kjördæmisráðs okkar líka mikilvægir til þess að treysta vináttuböndin. Kjördæmið hefur verið við lýði í þessari mynd í fjögur ár. Það var ekki vandalaust að stilla saman strengina í svo stóru og á margan hátt innbyrðis ólíku kjördæmi. Slíkt hefur þó gengið vonum framar að mínum dómi. Maður finnur og sér að kynni fólks eru að aukast og vináttuböndin að verða traustari. Lesa meira
 

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica