Pistlar

Skynsamleg niðurstaða í þágu íslenskra hagsmuna

27.9.2006

KeflavikurvollurNiðurstaðan í varnarviðræðunum við Bandaríkjamenn sem kynnt var í gær, tryggir varnarhagsmuni okkar. Það er líka vel fyrir því séð að ekki verður röskun á starfsemi alþjóðaflugvallarins á Keflavíkurflugvelli. Við tökum yfir húsnæði og búnað sem telst á hrakvirði 11 milljarða virði. Þess í stað munum við annast hreinsun vallarsvæðisins. Þetta er því augljóslega fjárhagslega séð góður samningur, gagnstætt því sem gasprararnir í stjórnandstöðunni segja.

Það er auðvelt að skilja Vinstri Græna. Þeir hafa verið andvígir varnarsamstarfi vestrænna lýðræðisþjóða líkt og fyrirrennarar þeirra í Sósíalistaflokknum og Alþýðubandalaginu. En Samfylkingin féll á enn einu prófinu. Þau lögðust bara í neikvæða nöldrið sitt, sem virðist vera orðið einkennismerki flokksins. Litlu virðist það hafa breytt þó sá glaðlegi Össur Skarphéðinsson hafi verið dubbaður upp í þingflokksformennsku. Neikvæðnin lifir ennþá góðu lífi.

Sá stjórnarandstöðuleiðtoga sem best hélt haus í þessu máli var Guðjón A. Kristjánsson formaður Frjálslyndra. Gagnrýni hans var af öðrum toga og hann skildi augljóslega málið betur.

Samhengislaus umræða

Það er gagnrýnt að Íslendingar taka að sér að hreinsa mengun sem er á varnarsvæðinu. Þetta er ekki hægt að ræða samhengislaust. Gætum þess að hluti af þessu samkomulagi var einnig það að við fáum til yfirráða margs konar lausafjármuni, vélar, tæki og tól, sem er nauðsynlegt til rekstur flugvallarins. Það er augljóst hverjum manni að endurstofnverð slíkra tækja hefði numið gríðarlega háum fjárhæðum, sem við hefðum þurft að reiða ella fram. Hitt er líka ástæða til þess að minna á að á varnarsvæðinu er mikill húsakostur, sem í munu felast margvíslegir möguleikar. Margir hafa þegar sýnt þessum eignum áhuga; svo sem fulltrúar sveitarfélaga á svæðinu, eins og fram hefur komið í fjölmiðlum. Enginn vafi er á því að upp munu koma hugmyndir að nýtingu þessara eigna í margvíslegum tilgangi. Staðsetningin er áhugaverð, í næsta nágrenni við ört vaxandi alþjóðaflugvöll.

Við getum unnið að mengunarvörnunum

Og að öðru leyti varðandi mengunarmálin. Fyrir liggur að ákvæði er í samkomulaginu sem kveður á um að þau mál verða sérstaklega tekin upp ef eitthvað óvænt gerist í þeim efnum. Þegar hafa farið fram ítarlegar athuganir á þessum málum af hálfu íslenskra sérfræðinga. Þær segja okkur að þarna er ekki um óyfirstíganelggt mál að ræða. Við getum unnið að þessum hreinsunum á þeim tíma sem hentar og eftir því sem nauðsyn krefur. Það er því örugglega í okkar þágu að hafa þessi mál á okkar valdi.

En vitaskuld snýst þetta mál ekki um krónur og aura þó slíkt skipti vissulega máli. Varnarhagsmunirnir eru aðalatriðið. Það þarf að undirstrika að varnarsamningurinn sem kveður á um skyldur Bandaríkjamanna er í gildi. Þær loftvarnir sem við hefðum kosið verða sannarlega ekki til staðar, en þeim verður sinnt með öðrum hætti, eins og þegar hefur verið rakið.

Furðulegt

Stórfurðulegt var að hlýða á þingflokksformann Samfylkingarinnar tala eins og hann teldi þörf á herþotum hér á landi, í sjónvarpinu í gærkveldi, þó flokkur hans hafi hingað til gert lítið úr þeim málum. Þarna sjáum við bara enn eitt dæmið hvernig menn láta sem eru í rökþroti. Grípa holt og bolt einhver mál, sem þeir halda að geti orðið sér hálmstrá, þó röklegt samhengi sé ekki til staðar.

Með niðurstöðunni í viðræðunum við Bandaríkjamenn eru jafnframt lögð drög að frekari uppbyggingu sem lýtur að innra öryggi okkar, þátttöku aðila eins og Landhelgisgæslunnar og þáttum, sem ætla hefði mátt að yrði fagnað hér í umræðunni. Menn hafa sagt að tími loftvarna væri liðinn og nauðsynlegt væri að efla viðbúnað til þess að takast á við aðra vá og ógn. Það er einmitt verið að gera með þessu samkomulagi. Þess vegna verður ekki öðru trúað en að almenn samstaða verði um þann þátt málsins.

Kjarni málsins

En kjarni málsins er þá þessi. Við höfum í samvinnu við Bandaríkin reist nýja varnaráætlun. Við erum að treysta innra öryggi landsins, við erum að leggja upp í vinnu við að taka meiri þátt í þeim efnum og bregðast við ógn sem öllum ríkjum getur stafað hætta af, t.d vegna hryðjuverka. Loks er ljóst að við getum áfram rekið hina umfangsmiklu flugvallarstarfsemi snurðulaust, með þeim tækjum sem við fáum í hendur og höfum svo fullt vald á því að hreinsa varnarsvæðið í samræmi við okkar eigin kröfur.



Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica