Íslendingar geta látið mikið og gott af sér leiða á sviði þróunarmála. Við þekkjum mörg góð dæmi um þetta. Þarna getum við hugað að mörgu. Við getum hugað að félagsmálum, mannúðarmálum og uppbyggingu atvinnulífs á margvíslegum sviðum. Við eigum sérfræðinga á öllum þessum sviðum. Athygli hefur til dæmis vakið að hjónin Sigurður Guðmundsson landlæknir og Sigríður Snæbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja eru á leið til Malaví á vegum Þróunarsamvinnsustofnunar, ÞSSÍ. Við höfum líka unnið mikil og góð störf suður í Namibíu, eins og ég kynntist á ferð minni þangað á dögunum. Um þetta fjallar eftirfarandi pistill.
Lesa meira
Fiskidagurinn mikli á Dalvík er alveg ótrúlegur. Skemmtilegur, lýsir hugmyndaauðgi og er sóttur af tugþúsundum manna alls staðar að af landinu. Ég fékk þann heiður að vera boðinn þangað af forsvarsmönnum hátíðarinnar, sótti glæsilega tónleika Karlakórsins og heimsótti þrjú heimili sem buðu upp á girnilega fiskisúpu. Það er eitt út af fyrir sig stórmerkilegt að um 40 heimili opni dyr sínar fyrir gestum og gangandi sem koma þangað í hundruða vís og þiggja góðgerðir. Og það sýnir hug heimamanna að fiskverkendur, ekki síst Samherji leggja til hráefni í þessa stærstu fiskiveislu landsins og þótt víðar væri leitað. Allir þeir sem að þessu máli koma eiga skilið heila þökk fyrir. Þetta er einstaklega myndarlegt og skemmtilegt framtak.
Jóhann Antonsson, sem gefur út blaðið Bæjarpóstinn á Dalvík, bað mig um að láta í té uppskrift í blaðið. Þar var ég í glæsilegum félagsskap þeirra Svanfríðar Ingu Jónasdóttur bæjarstjóra, Þorsteins Más Baldvinssonar forstj. Samherja og Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra. Uppskriftinni fylgdi síðan pistill sem hér getur að líta.
Lesa meira
Það vantar meira fé til skólamála, það vantar meira fé til heilbrigðismála, það þarf að auka fjármagn til verlferðarmálanna almennt er oft sagt. Og vissulega má það til sanns vegar færa að við gætum gert meira á þessum sviðum ef við hefðum til þess meira fjármagn. Enginn efast um að hægt væri að gera margt þarflegt með meiri peningum í heilbrigðismálum okkar eða menntamálum. Þetta eru kostnaðarsamir málaflokkar og við sem rík og öflug þjóð viljum veita til þeirra miklu fjármagni. Það er líka reyndin. Athyglisvert er það hins vegar að OECD segir að við verjum hlutfallslega mestu fé til menntamála innan OECD sem hlutfall af vergri landsframleiðslu og að útgjöld okkar til heilbrigðismála séu með því hæsta og hafi vaxið hlutfallslega meira en að meðaltali innan OECD.
Lesa meira
Fjölmiðlar greindu frá því nýverið að skemmtibátar hefðu fengið kvótaúthlutun. Og var á fréttum að skilja að nú hefði skemmtibátaeigendum verið færður umtalsverður kvóti og þar með stórfé. Út á það gengu fréttirnar og mætur maður leiddur um bryggjur Reykjavíkurhafnar til þess að útlista skandalinn ! Tekið skal fram, að aldrei var af fyrra bragði, leitað eftir viðbrögðum hjá mér, sem hlýt þó að teljast pólitískur ábyrgðarmaður í þessu tilviki. Sú eftirgrennslan hefði þá leitt í ljós, sem ég tjáði mig um í sjónvarpsfréttum, að þetta "stóra skemmtibátahneyksli", sem riðið hafði röftum í hverjum fjölmiðlinum á fætur öðrum, snerist um það að þrír skemmtibátar höfðu fengið úthlutun úr þessum umrædda þrjú þúsund tonna potti. Alls nam úthlutunin 766 kílóum. Það var allur skandallinn!!
Lesa meira