Pistlar

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru að skila árangri - 25.7.2006

Ráðuneyti Geirs H. HaardeMenn ræddu mikið um frestun tónlistar og ráðstefnuhúss. Sú ákvörðun hlaut að gerast í samkomulagi einkahlutafélagsins sem að því stendur, ríkisins og Reykjavíkurborgar, en það eru aðilarnir sem standa fyrir þessari miklu framkvæmd. Nú hefur verið ákveðið að til slíkra formlegra viðræðna verði gengið. Allt bendir til þess að með því að hægja á framkvæmdinni verði hægt að færa þunga hennar yfir á árið 2008. Það er gott og skynsamlegt. Líka út frá sjónarhóli eignaraðila, sem þá munu fá verkið unnið við viðráðanlegra verði.

Þannig kemst ég að orði í nýjum pistli þar sem ég dreg fram hvernig aðgerðir ríkisstjórnarinnar til þess að draga úr þenslu séu að skila árangri og stuðli að því að hægt verði að fara í útboð þar sem framkvæmdir á Norðaustur og Norðvesturhorni landsins verði settar í forgang.

Lesa meira
 

Sígildur listamaður syngur sjómannalögin - 12.7.2006

Raggi Bjarna afhendir vefara fyrsta eintakið af Vel sjóaðurÍ rauninni eru sjómannalögin stórmerkilegur hluti af alþýðumenningu okkar. Blómatími þeirra var kannski ekki mjög langur; stóð þó í nokkra áratugi. Sjómannalögin drógu oft upp rómantíska mynd af grundvallaratvinnu okkar, sjómennskunni. Hefur mönnum stundum þótt nóg um. Ragnar Bjarnason sagði mér sögu af því að fullorðinn sjómaður hefði vikið sér að sér eitt sinn og spurt. "Ert þú þessi Raggi Bjarna"? Því jánkaði söngvarinn. Sjómaðurinn sagði þá við hann að fyrir löngu hefði hann fengið meira en nóg af þessum mikla rómans í kring um sönginn hans. -"Þegar maður stendur út á dekki í norðaustan brælu, kannski kaldur og blautur og heyri þig syngja Ship ohoj og blikandi bárufan og ástir og ævintýr, í gegn um hátalaragarganið í mastrinu þá er mér alveg nóg boðið, sagði sjómaðurinn. Og Raggi hló dátt þegar hann rifjaði upp þessa sögu."

Þetta er skrifað í tilefni af því að þeir Ragnar Bjarnason söngvari og Þorgeir Ástvaldsson útvarpsmaðurinn ástsæli heimsóttu mig til þess að afhenda mér hinn stórfína nýja geisladisk Ragga, Vel sjóaður.

Lesa meira
 

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica