Öld hinna miklu stjórnmálasigra
Við sem nú stöndum í sveit stjórnmálanna og í forystu sjávarútvegsmála, ber að halda þessu merki á lofti. Nú vex úr grasi ný kynslóð fólks sem ekki minnist þess elds sem á okkur brann í landhelgisstríðunum og á ef til vill erfitt með að setja sig í þau spor. Þess vegna höfum við svo ríkar skyldur, að halda þekkingunni vakandi. Í því samfélagi alþjóðavæðingar sem við lifum nú, getur það vel gerst að sjónarmiðin sem lágu til grundvallar landhelgisbaráttunni gleymist og fyrnist. Það væri hættulegt og því eru kvaðir okkar svo ríkar að gæta þess að þeim meginsjónarmiðum verði ekki fórnað í þágu stundarhagsmuna.
Þannig er komist að orði í grein sem ég skrifaði í blaðið Átökin um auðlindina sem fylgir Morgunblaðinu í dag. Þar fjalla ég um landhelgismálin og reyni að setja þau í sögulegt samhengi.
Lesa meiraHrakfarir vinstri hræðslubandalaganna
Menn geta auðvitað haft ýmsar skoðanir á úrslitum nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga og það er eðlilegt. En meðal þess sem upp úr stendur og er skýrt er þetta: Vinstri sambræðings hræðslubandalög tapa víðast hvar. Á því eru undantekningar, en meginlínan er skýr. Þessar kosningar voru uppgjör við hræðuslubandalögin. Og er það ekki táknrænt. Nú eru einmitt 40 ár liðin frá því að frægasta hræðslubandalag lýðveldistímans leit dagsins ljós; bandalag Framsóknar og Alþýðuflokks. Það fór á rassinum út úr þeim kosningum. Nú á 40 ára afmæli gamla hræðslubandalagsins endurtekur sagan sig. Í þessum kosningum kom glöggt fram að kjósendum hugnast ekki þessi vinstri skyrhræringur.
Þannig er komist að orði í pistli sem ég skrifa um úrslit kosninganna og augunum sérstaklega beint að hræðslubandalögunum til vinstri sem reyndu fyrir sér nú eins og stundum áður og í þetta skipti alveg með hraklegum árangri.
Lesa meiraGamall kaldastríðsdraugur gengur aftur - og nú í Samfylkingunni
Þegar svona máflutningur er reiddur fram er í sjálfu sér ekki von á góðu. Og þó. Fyrir okkur sem munum kalda stríðið og orðleppa Þjóðviljans, er það eins og afturhvarf um nokkra áratugi að lesa grein á borð við þá sem Björgvin G. Sigurðsson lætur frá sér fara í Morgunblaðinu í dag. Kaldastríðsdraugurinn lifir semsé ágætu lífi, afturgenginn í Samfylkingunni. Þannig er komist að orði í pistlinum sem skrifaður er í dag í tilefni af grein gamals alþýðubandalagsmanns og núverandi þingmanns Samfylkingarinnar, Björgvins G. Sigurðssonar Lesa meira
Hornstrandir heilla og seiða
Þannig heilla Hornstrandirnar hvern þann sem hefur gengið þeim á hönd með ferð norður þangað. Og jafnvel þó komið sé ítrekað í sama áfangastað, finnur maður eitthvað nýtt. Lífríkið í Reykjafirði, rekinn í Bolungarvík, náttúrusmíðn sjálf – Drangaskörðin, björgin í Hornvíkinni, fiskurinn í Fljótinu í Fljótavík, hinar gullnu sandstrendur í Aðalvíkinni og fjölbreytileiki Jökulfjarðanna. Allt heillar þetta og seiðar. Hin mikla víðátta er þannig að sjaldan hittir maður fólk nema vitaskuld í náttstað vinsælustu áfangastaðanna. Og þó við höfum talið okkur hafa farið um flesta lófastóra bletti á þessu svæði er ferð minni aftur heitið norður þangað í sumar. Það stenst enginn ákall og áskorun Strandanna.
Þannig kemst ég að orði í grein sem hér fer á eftir og áður hefur birst í blaðinu Vestfirðir og segir af því hvernig ég upplifi þá dýrð ásamt vinum mínum í Hallgrími Bláskó að ganga um töfrum hlaðnar Hornstrandir
Lesa meira
