Athyglisvert er að lesa skoðanakönnun Samtaka Atvinnulífsins á meðal ungs fólks. Það er nefnilega þannig að ungt fólk, sem er jákvætt gagnvart alþjóðavæðingu er miklu víðsýnna en kynslóðirnar sem á undan fóru. Það lítur ekki á "þorpið" sitt (les höfuðborgarsvæðið) sem nafla alheimsins eins og maður upplifir stundum á meðal minnar kynsóðar . Heimsmynd unga fólksins er svo miklu víðfeðmari. Þess vegna er það jafn gildur kostur í hugum þess að vinna á Ísafirði sem Lundúnum, New York sem Egilsstöðum, Brussel sem Selfossi, og Barcelona sem Akureyri og þess vegna Reykjavík eftir atvikum. Rétt eins og hún sagði unga stúlkan sem rætt var við á myndbandi SA aðspurð um hvar hún kysi að búa og starfa; Í New York, Akureyri eða London, svaraði hún.
Lesa meira
Sé ástæða til að banna fólki að taka lán með verðtryggðum kjörum, hlýtur líka að koma til álita að banna almenningi að taka erlend lán. Þau eru nefnilega gengistryggð og sveiflast í kjörum miðað við þróun gengisins. Og er einhver sérstök ástæða til að neyða menn frá hagstæðari verðtryggðum kjörum og inn í óhagstæðari óverðtryggð kjör. Vilji menn forðast verðtrygginguna þá er sú leið fær. Það neyðir mann enginn til þess að axla verðtrygginguna. Það er annarra kosta völ Menn eiga þess vegna að gá að sér. Svo má nefnilega böl bæta að bíði annað verra. Þetta ættu menn að hafa í huga þegar rætt er um verðtrygginguna. Kostir mann við lántökur eru núna fleiri og fjölþættari en nokkru sini fyrr
Lesa meira