Pistlar

Tæknin varðveitir gömul ( og góð ) gildi - 30.3.2006

MjólkurpósturMitt í allri framtíðarhugsuninni og framfaradýrkuninni reikar hugurinn til þess að framfarirnar kveikja ekki einasta breytingar. Þær eru líka skjöldur góðra hefða og forsenda margs þess úr fortíðinni sem við viljum varðveita; þó ekki væri nema vegna dygðugrar íhaldssemi sem vel má hafa í hávegum. Hér skal nefna tvennt í þessu sambandi, svo ólíkt sem það er; heimsendar breskar mjólkurflöskur og sendibréfagerð að íslenskum gömlum og góðum sið, sem aukinheldur hafa hleypt nýju lífi í vísnagerð í landinu.

Vísnagerð, mjólkurflöskur og sendibréf, sækja sem sé skjól sitt í svo óvænta átt sem til tölvutækninnar

Af þessu má ráða að tæknin er ekki bara ögrun við fortíðina. Hún er líka skjól gamalla og góðra hátta. Það má því með sanni segja að tæknin varðveiti gömul gildi.

Lesa meira

 

Hin mörgu andlit Evrópusambandsins - 13.3.2006

ESBEvrópusamstarfið á vettvangi ESB er að verða mjög margslungið apparat og alls ekki einfalt að sjá þar eina skýra línu. Spurningin sem við þurfum að velta upp er því alltaf hin eina og sama, áður en lengra er haldið: Hvaða Evrópusamband? Þar liggja greinilega vegir til allra átta og spurning hver ræður þeirri för, svo stuðst sé við rómaðar línur úr kveðskap Indriða G. Við gerum því best að halda áfram okkar stefnu. Vera þátttakendur í Evrópusamstarfi á okkar forsendum, standa utan við Evrópusambandið, en halda áfram þeirri upplýstu almennu umræðu um Evrópumál, sem meðal annars er höfð forganga um í prýðilegu samstarfi allra flokka á vettvangi Evrópustefnunefndar forsætisráðherra. Það er okkar rétta leið Lesa meira
 

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica