Pistlar

19.2.2006 : Tár gíraffans

Fjölskylda af Yoruba ættbálkiVið höfum öll óskaplega gott af því að hyggja að öðru en hversdagslegu amstri og íslenskri þjóðmálaumræðu. Við eigum að nota frábæra pistla hans Össurar Skarphéðinssonar frá Afríku til þess að hyggja að hinum raunverulegu vandamálum sem við er að glíma í veröldinni. Í velsældarríkinu okkar tökumst við á við viðfangsefni, sem við tökum vitaskuld alvarlega. En í samanburði við lönd og álfur sem glíma við vandamál, fátæktar, ólæsis eða vatnsskorts svo dæmi séu tekin, er allt annað dæmt til að falla í skuggann. Þess vegna eigum við að setja þessi mál í samhengi. Við höfum gott af því og það á líka að vera hluti af hugsun fólks sem vill í huga sér hafa einhverja heimsmynd. Lesa meira
 

1.2.2006 : Þolir efnahagslífið frekari stóriðjuframkvæmdir?

NorðurálKjarni málsins er þá þessi: Við eigum vitaskuld að nýta orkulindir okkar, eins og við höfum stefnt að því að gera og af virðingu fyrir náttúrunni. Við þurfum að viðhalda hagvexti, til þess að standa undir áframhaldandi lífskjarabata. Það verður meðal annars gert með áframhaldandi stóriðjuuppbyggingu. Við verðum á hinn bóginn að gæta þess að slíkt sé gert þannig að neikvæð áhrif (þensla, gengishækkanir oþh) fylgi ekki með í kjölfarið. Þetta getum við gert með skynsamlegri skipulagningu og réttri tímasetningu.

Þannig er komist að orði í pistli hér á heimasíðunni þar sem fjallað er um hugmyndir og fyrirætlanir um frekari uppbyggingu í stóriðjumálum. Lýst er stuðningi við frekari stóriðjuuppbyggingu en hvatt til þess að tímasetning framkvæmdanna helli ekki yfir okkur hágengis og vaxtahækkanatímabili.

Lesa meira
 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.