Pistlar

Áferðarfallegur póltitískur snoppungur

19.1.2006

SamfylkinginÞað er alltaf dálítið gaman að fylgjast með í umræðum hvernig stjórnarandstöðuflokkarnir Samfylking og Vinstri grænir tjá gagnkvæman ástarhug sinn í verki. Eina stundina ganga á milli miklar yfirlýsingar um gagnkvæma ást og virðingu. En þá næsta þá skjótast á milli löðrungarnir, misjafnlega snyrtilegir þó. Stundum er talað með yfirbragði hins elskulega skepnuskapar og þá finnst okkur sem utanvið Vinstri grænirstöndum að best takist til. Snyrtilegur og áferðarfallegur pólitískur snoppungur þykir enda snjall í ranni flokkanna tveggja.

Tvö skemmtileg og skýr dæmi um þessa aðferðarfræði í millum flokkanna tveggja birtust okkur nú á dögunum og er engin ástæða til þess að þau þurfi að liggja í láginni.

Vindhanar á burst?

Tökum fyrst högg Vinstri grænna. Það stóðu yfir umræður strax á fyrsta degi þingsins þar sem verið var að ræða Norðlingaölduveitu. Þannig stendur nú á spori í þeim efnum að efnislega hafði Samfylkingin ljáð því máli lið sitt á fyrri stigum. Flokkurinn reynir nú að leita allra leiða til þess að hlaupa frá fyrri ákvörðun og er í sjálfum sér öllum heimilt að skipta um skoðun.

Vinstri grænir vilja þó sýnilega ekki láta slíkt gerast áreynslulaust og vilja láta málið hafa hentistefnuáferð fyrir vini sína í Samfylkingunni. Þess vegna sagði Kolbrún Halldórsdóttir frá Vinstri Grænum er hún ræddi þessi mál á Alþingi, sl. þriðjudag: "Nú er lag. Vindarnir eru að snúast. Hæstv. forsætisráðherra og hæstv. ríkisstjórn ætti auðvitað að leyfa sér að snúast með vindinum eins og hv. þingmenn Samfylkingarinnar hafa ákveðið að gera og við fögnum því. Við skulum því sjá núna til þess hvort fólk geti ekki bara farið með þessum vindi, fylkt sér að bak við tvo þriðju hluta þjóðarinnar sem hafa gefið út í skoðanakönnunum vilja sinn, vilja til að þyrma Þjórsárverum um langa framtíð og vernda þau."

Þarna spyrðir sumsé þingmaðurinn Samfylkinguna við vegferð ríkisstjórnarinnar og verður vart lengra gengið í umfjöllun um stærsta stjórnarandstöðuflokkinn. Og um leið er orðalagið þannig að ómögulegt er að skilja öðruvísi en svo að flokkurinn sveiflist til í skoðanamyndun sinni eftir því hvernig vindarnir blása hverju sinni. Þetta er auðvitað sérlega viðkvæmt því að allir vita að snöggur blettur er á Samfylkingunni að þeir hafa það orð á sér að láti fremur stjórnast af skoðanakönnunum en stefnufestu.

Óneitanlega kemur upp í hugann hugtakið "að snúast eins og vindhanar á burst", enda örugglega ætlast til þess.

Kjaradómur er Ögmundi Jónassyni að kenna

En Samfylkingin lét ekki eiga neitt inni hjá sér. Stund hefndarinnar rann upp og það raunar fyrr en síðar. Fáeinum stundafjórðungum síðar hófst nefnilega umræða um kjaradómsmálin og þá var nú hægt að borga í sömu mynt. Á ferðinni var sjálfur formaðurinn, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem sagði: "Það sem bæði Kjaradómur og kjaranefnd eiga að gera er að gæta innbyrðis samræmis í launakjörum við þá viðmiðunarhópa sem þar er eðlilegt að séu. Kjaradómur skoðar hvað kjaranefnd hefur verið að gera og kjaranefnd skoðar aftur hvað hefur verið að gerast í ráðuneytum og stofnunum sem undir ráðherrana heyra og síðan úrskurðar kjaranefnd í samræmi við þá þróun eins og henni ber og Kjaradómur úrskurðar líka í samræmi við þá þróun eins og Kjaradómi ber. Einbjörn togar í Tvíbjörn sem togar í Þríbjörn og allt í einu verður lýðum ljóst hvað þarna er á ferðinni, hvað þarna var að gerast í ríkisstofnunum og ráðuneytum og allt springur í loft upp. Það er ekki við Kjaradóm sem slíkan að sakast. Hann er í rauninni boðberi tíðinda og tíðindin eiga rót sína að rekja í ráðuneytunum sem eru auðvitað á forræði ráðherranna og á þeirra ábyrgð."

Þarna fer sko ekkert á milli mála. Setjum þetta í samhengi. Ákvörðun Kjaradóms var umdeild og hafði hlotið gríðarlega gagnrýni úti í þjóðfélaginu. Meðal annars frá verkalýðsforystunni. En hvað segir Ingibjörg Sólrún? Jú hún hefur skýringar á reiðum höndum. Þeirra er að leita, segir hún í því sem var að gerast í ráðuneytum og ríkisstofnunum, þar sem meðal annars situr fólk innan vébanda BSRB, undir forystu Ögmundar Jónasonar, þingflokksformanns Vinstri grænna.

Að sönnu er málið látið líta þannig út að sökudólgurin sé hin vonda ríkisstjórn. En vitaskuld sér hvert mannsbarn hvað er á ferðinni. Í raun er verið að halda því fram að fólkið í ríkisstofnunum og ráðuneytum hafi fengið launahækkanir umfram almenna launaþróun og því sé þangað að leita orsaka fyrir því að Kjaradómur hafi komist að niðurstöðu sinni. Sem staðfastur lesandi heimasíðu Ögmundar Jónassonar hef ég beðið þess með nokkurri eftirvæntingu að hann svaraði þessum kárínum. En það verður að segjast eins og er að það svar hefur látið eftir sér bíða.

Þetta eru afskaplega kænlegar skilmingar, sem hafa það að markmiði að ergja nokkuð andstæðinginn en gera það undir rós. Þessi aðferð er gamalþekkt en alltaf svo sem jafn skemmtileg



Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica