Pistlar

Þegar skattaLÆKKANIR verða skattaHÆKKANIR - 26.1.2006

peningarStundum veltast hlutirnir skringilega í hinni pólitísku veröld. Þannig er það að minnsta kosti með skattamálin. Nú er kominn fram á sjónarsviðið prófessor ofan úr Háskóla Íslands sem segir okkur að skattalækkun sé skattahækkun. Prófessor Stefán Ólafsson var enda tekinn í guðatölu í umræðu samfylkingarþingmanna í dag um skattamál og er það að vonum. Maður sem snýr staðreyndum á haus er kjörin pólitísk ædol - stjarna fyrir þann flokk.

Þannig er komist að orði í meðfylgjandi pistli. Rakin er umræðan um vond áhrif á skattalækkunum ríkisstjórnarinnar. Samfylkingin vildi láta afturkalla skattalækkanirnar en í dag voru þingmenn hennar að tala eins og prófessorinn; að skattalækkanirnar væru í raun skattahækkanir.

Lesa meira
 

Áferðarfallegur póltitískur snoppungur - 19.1.2006

Ingibjörg Sólrún GísladóttirÞað er alltaf dálítið gaman að fylgjast með í umræðum hvernig stjórnarandstöðuflokkarnir Samfylking og Vinstri grænir tjá gagnkvæman ástarhug sinn í verki. Eina stundina ganga á milli miklar yfirlýsingar um gagnkvæma ást og virðingu. En þá næsta þá skjótast á milli löðrungarnir, misjafnlega snyrtilegir þó. Stundum er talað með yfirbragði hins Kolbrún Halldórsdóttirelskulega skepnuskapar og þá finnst okkur sem utanvið stöndum að best takist til. Snyrtilegur og áferðarfallegur pólitískur snoppungur þykir enda snjall í ranni flokkanna tveggja.

Tvö skemmtileg og skýr dæmi um þessa aðferðarfræði í millum flokkanna tveggja birtust okkur nú á dögunum og er engin ástæða til þess að þau þurfi að liggja í láginni. Fyrra dæmið er af því er Kolbrún Halldórsdóttir skaut föstum skotum á Ögmundur JónassonSamfylkinguna vegna meintra skoðanaskipta flokksins varðandi Norðlingaölduveitu og hitt er formaður Samfylkingarinnar, sama dag, kenndi í raun samningum við opinbera starfsmenn sem Ögmundur Jónasson fer fyrir, um orsakir hins umdeilda Kjaradóms.

Lesa meira
 

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica