Pistlar

Afmælisdiktur

23.12.2005

Glatt á hjallaFimmtugsafmælið mitt þann 2. desember sl. var fjölsótt og skemmtilegt. Það fannst að minnsta kosti afmælisbarninu sjálfu. Og mikið stuð var á dansleiknum sem við Sigrún efndum til að lokinni afmælisdagskránni, þar sem Þórunn og Halli héldu uppi stanslausu fjöri. Í afmælið komu fjölmargir vinir mínir. Fólk sem ég hef þekkt frá bernsku, nágrannar, samstarfsfólk frá ýmsum skeiðum starfsferils míns. Fólk sem þurfti að fara um langan veg og sveitungar mínir og nágrannar.

Þarna voru fluttar til mín vísur og heilu kvæðin. Karlakórinn Ernir söng brag, sem og sönghópurinn Ísafjarðardætur og einnig gönguhópurinn Hallgrímur Bláskór sem við hjónin tilheyrum. Og loks fékk ég vísur sendar í símskeytum.

Allt var þetta til þess að krydda afmælisdaginn og gera okkur hann ógleymanlegan.

Nú hef ég tekið saman allan kveðskapinn, birti hann hér á heimasíðunni og vona að lesendur megi vel njóta. Og svo til viðbótar ein praktísk ábending. Til þess að fá upplýsingar um myndirnar sem með fylgja er smellt á viðkomandi mynd og þá birtist texti.

Söngur Karlakórsins Ernis

Karlakórinn ErnirKarlakórinn Ernir heiðraði mig með nærveru sinni og flutti með miklum glæsibrag nokkur lög. Dagskrá sinni luku þeir með þessum brag, sem einn kórfélaga, Snorri Sturluson, útgerðarmaður og skipstjóri á Suðureyri samdi. Bragur Snorra og þeirra karlakórsmanna fer hér á eftir. Þennan brag má syngja undir laginu alþekkta, It´s a long way to Tipparery

Fyrir mig – gamlan karlakórsmanninn til margra ára, - var ekki ónýtt að fá svona frábæran Snorri þriðji frá vinstriflutning frá gömlum karlakórsfélögum og vinum mínum.

Einar Kristinn Guðfinnssonur, hann á afmæli í dag

Allra óskum heilla honum, og hefjum gleðibrag

Hann er okkar sverð og skjöldur, í stjórnmálanna hríð

Hann er Vestfirðinga fyrsti höldur, í þingmannalýð.

Hann er borinn Bolvíkingur, átti bernsku í ró

Þótti ungur æði slyngur, í stjórnmálanna sjó

Og í framboð fljótt nú vildi, framahvötin slyng

Það var eins og blessuð skepnan skildi, hann skaust inn á þing.

Nú er vörðuð brautin beina, nú var baráttan háð

Fyrir vestfirska sómasveina, var sigrum mörgum náð

Stefndi markviss að marki settu, upp metorðanna hól

Og að lokum ráðinn var með réttu, í ráðherrastól.

Nú er valdið í vinar höndum, nú skal velferðin treyst

Fram nú þjáðir í þúsund löndum, nú þrautin verður leyst

Hérna gumar í gleði syngja, það græðir hug og sál

Núna glösin kátt við látum klingja, og kyrjum öll skál.

(hægar)

Já, núna glösin kátt við látum klingja, og kyrjum öll, SKÁÁÁL!!!

(síðasta orðið hrópað)

                                               Snorri Sturluson, Suðureyri.

 Þú hafðir ekki áhuga á íþróttum né sporti...

Hjónin Árni Magnússon og Sigfríður ÞórisdóttirMágkona mín hún Sigfríður Þórisdóttir flutti ræðu til mín og fléttaði skemmtilega saman  kynnum okkar og samskipti mín við föður hennar og tengdaföður minn, öðlingsmanninn Þóri Sigtryggsson. Inn í ræðuna óf hún líka brag þar sem áréttaði það sem hún sagði í obundnu máli og hann flýtur hér með.

 

Mikið var ég heppin, það segi ég  með sanni,                                                               

 að systir mín, hún giftist þessum  öðlingsmanni.                                                             

 Þau færðu  mér oft  gjafir og buðu mér að borða,                                                            

 borgun eða endurgreiðslu þýddi ekki  að orða.                                                                 

 Að fljóta með í leikhús fékk ég ótal sinnum                                                              

 já,fallegur er ljómi yfir öllum okkar kynnum.  

 

                                                                          

 Víst ertu, Einar minn, víðsýnn og  vitur                                                                    

 og veist sko að hver sá sem heima  situr                                                                    

 heimskur verður sem heimaalinn krakki                                                                    

 ég held að ég hérna fyrir það þakki                                      

 að þú skyldir öflugur stelpuna  styðja                                                                   

 sem stressaða móður reyndi að biðja                                      

 um leyfi að setjast í sumarskóla                                         

 já,sífellt á þína dómgreind má  stóla.           

 

                                                                        

 Um ennþá fleiri kosti þína kýs ég   hér að rabba,                                                            

 hvað þú varst nú góður og nærgætinn  við pabba.                                                               

 Hjá ykkur fyrir vestan fljótt hann  festi rætur,                                                             

 á frændum þínum og vinum hafði  miklar mætur.                                                            

 Seinna meir á Hrafnistu átti hann   eðalstundir,                                                              

 og ykkar á milli voru jafnan  gleðifundir.                                                             

 Sjómennsku og aflabrögð þið iðulega  rædduð                                                                   

 og örugglega báðir á því mikið  grædduð.                                                                 

 Ræktarsemi og umhyggju alla tíð þú  sýndir                                                                   

 alltaf í það ákvæða í samskiptunum  rýndir.                                                                  

 Nú situr hann á himnum og horfir á   þig fagna                                                                

 og heillaóskakveðjurnar til þín er  að magna.      

 

 

Þú hafðir ekki áhuga á íþróttum né sporti                                                                   

 að iðka slika vitleysu var alveg út úr korti.                                                                

 En núna ertu aldeilis allur annar  maður                                                                     

 og æfir inni í World Class bæði  sæll og glaður.                                                          

 Í lundaveiðum seigur og labbar   frjáls á fjöllum                                                          

 í framúrakstri á vegum slærðu svo  við öllum.                                                               

 Um orku þína og krafta því ekki  þarf að  spyrja                                                          

 enda er seinni hálfleikur bara rétt  að byrja.         

 

 Með innilegum afmæliskveðjum frá Ísafjarðardætrum

ÍsafjarðardæturÞrjár miklar og góðar vinkonur mínar, þær Birna Lárusdóttir, Ingunn Sturludóttir og Margrét Geirsdóttir á Ísafirði voru svo elskulegar að koma og syngja nokkur skemmtileg lög, í afmælisveislunni minni.  Þær eru um þessar mundir að troða upp á jólahlaðborði á Ísafirði og slá í gegn með frábærri frammistöðu. Meðal þess sem þær sungu var eftirfarandi kvæði sem Guðríður Guðmundsdóttir á Ísafirði orti. Þennan brag sungu þær undir laginu Hlíðin mín fríða.

 

Fyrir hálfri öld í heiminn bættist drengur

en hann er nú aldeilis enginn stubbur lengur.

Einar Kristinn heitir hann, á Alþingi nú situr,

og röskar ræður flytur.

 

Í ráðherrastólnum rær hann fram í gráðið.

Í sjávarútvegsmálum hann segist kunna ráðið.

Í Bolungarvík forðum á Brjótnum mátt´ann standa

og fiski fékk að landa.

 

Hann fór út til Englands og feiknin öll þar lærði.

Hugvitið síðan á á heimaslóðir færði.

Blaðamannatitilinn hann borið líka hefur –

það góðan “fíling” gefur.

 

Íþróttir forðum hann aldrei vildi stunda.

Upp í mjúkum sófa var ólíkt skárra að blunda.

En nú er öldin önnur -  hann æðir hér um fjöllin

og talar við tröllin.

 

Raddböndin er hann ekki neitt að spara.

Í Idolið kannski ætti hann að fara.

Hann tjáir sig með höndunum og talar hátt og lengi

og slær á létta strengi.

 

Til Reykjavíkur einu sinni Einar þurfti að fara

og ekki var þá Haddi bæjó bensínið að spara.

Þeir voru að missa af fundi – svo fór hann líka að snjóa.

Þeir enduðu út í móa.

 

Einar  - þér viljum við óskir góðar færa.

Um alla þína framtíð lýsi gæfustjarnan skæra.

Þér hamingja og heilladísir alltaf vaki yfir

og lengi þú lifir!

                                     Guðríður Guðmundsdóttir, Ísafirði.

 Hallgrímur Bláskór treður upp

Hallgrímur BláskórVið Sigrún erum svo stálheppin að vera í gönguklúbbi, sem kallast Hallgrímur Bláskór. Í viðtali við blaðið Nýtt líf sagði ég þetta vera besta gönguklúbb í heimi og er þar ekkert ofmælt ( mætti kannski bæta við,  þó víðar sé leitað..)  Vinir okkar í gönguklúbbnum – við teljum 18 manns – mættu, stigu á svið og slógu í gegn. Bæði með bráðskemmtilegum texta sem einn göngufélaganna, Hanna Jóhannesdóttir samdi og einnig með miklum leikþætti þegar þau Hjónin Hanna Jóhannesdóttir og Andrés Kristjánssonafhentu mér bakpoka að gjöf, sem meðal annars innihélt hafragraut með þurrkuðum eplum, en það  er morgunmaturinn okkar Sigrúnar sem Gunnar Þórðarson  göngufélagi okkar innleiddi og Gammeldansk, sem kemur í staðinn fyrir þorskalýsi í þessum ferðum. Og aðeins til skýringar. Mjög er vitnað í þessu kvæði til meintrar glæfraferðar minnar yfir Hornvíkurósinn í leit að vaði og segja ( ýkjukenndar ?) frásagnir félaga minna að ég hafi sakir  þrákelkni minnar  verið kominn upp undir axlir í vatni og sjó í leit að vaði !!

En kvæðið má syngja undir laginu alþekkta , Ef værir þú á leið til Ítalíu og fer vel á því, þar sem fyrsta og hingað til eina ferð gönguhópsins til útlanda var til Ítalíu, í fyrra.

 

Ef upp á fjöll þú ólmur vilt strax æða.

þá þarf það ekki að verða nokkur mæða.

Við þingmann nokkurn þá er gott að ræða,

og forvitnast um gönguferðarplön.

 

Viðlag:

Hann Einar, hann Einar, hann Einar,

hann syndir í ísköldum sjó.

Hann Einar, hann Einar, hann Einar,

á frábæra fjallgönguskó.

 

Ef langar þig að synda eins og selur,

þá sundkennslu hjá Einari þú velur.

Með Hallgrími á Hornströndum þú dvelur,

og litla Hallgrím felur þú um stund.

 

Ef langar þig að heyra skondnar sögur,

um málefni og menn og fornar bögur,

þá frásögn Einars kemur sönn og fögur,

og skemmtir þér á leiðinni í land.

 

Viðlag:

Hann Einar, hann Einar, hann Einar,

hann syndir í ísköldum sjó.

Hann Einar, hann Einar, hann Einar,

á frábæra fjallgönguskó.

 

Og kæri vinur, hérna kemur flauta,

því stundum bara þýðir ekki að tauta.

En varastu að gera hana blauta,

þá pokinn allur kominn er á kaf.

 

Kæri Einar, fimmtíu árin liðin,

nú ráðherra að róa á fiskimiðin.

Vertu áfram árvakur og iðinn,

og lífsins njóttu næstu fimmtíu ár.

 

Viðlag:

Hann Einar, hann Einar, hann Einar,

hann fúslega veitir þér lið,

Hann Einar, hann Einar, hann Einar,

á frábæra frú sér við hlið.

Þau búa í Hvassaleiti

og halda þar góð teiti.

Ef þú ert á næsta leiti,

::þá verður húllumhæ.::

                                        Hanna Jóhannesdóttir 

 Kvæði eftir Hákon Aðalsteinsson

Friðbjörn Óskarsson og Jóhann HákonarsonMeðal góðra gjafa sem ég fékk á afmælisdegi mínum, var meðfylgjandi kvæði sem sveitungi minn Jóhann Hákonarson færði mér. Hann hafði farið þess á leit við föður sinn, þann landsfræga hagyrðing Hákon Aðalsteinsson, að yrkja í tilefni afmælisins. Vísurnar runnu léttilega af vörum hins mikla hagyrðings,  - eins og vænta mátti - og birtast hér:

 

Afmæliskveðja

 Hér við sjóinn upp hann ólst

efni gott í honum fólst,

leysti margt af hendi hann

hentugt efni í fiskimann.

 

Minnistæður maður er

mikill þótti fyrir sér,

margt var þá í rökkri reynt

sem réttast er að fari leynt.

 

Fæddur er við fiskislóð

finnur víða ráðin góð,

ýmsa gamla klæki kann

og krókaleiðir ratar hann.

 

Ekki skipta hætishót

Hálfrar aldar tímamót,

þann, sem jafnan ungur er

og aldurinn með gleði ber.

 

Þó að gefi á bæði borð

bitur falli til hans orð.

Seglum þöndum siglir hann

sjávarútvegsráðherran.

 

Vel er nú að vinarskál

veki söng og gleðimál.

Hamingja um lífsins lönd

leiði þig við sína hönd.

             Hákon Aðalsteinsson

 

Bolvíkingar þess ei munu bíða bætur...

Geir, Inga Jóna, Sigrún og Einar K.Minn góði vinur, Geir H. Haarde utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins kvaddi sér fyrstur hljóðs í afmæli mínu. Þar varpaði hann meðal annars fram stöku, sem hann bjó til eftir að hafa hlýtt á undurfagran söng þeirra Ísfjarðardætra, sem fyrr er greint frá. Vísu Geirs má syngja undir alþekktu lagi Inga T. Lárussonar við texta Páls Ólafssonar, Sólskríkjan mín situr þarna á sama steini.  En vísa Geirs er svona:

 

Bolvíkingar þess ei munu bíða bætur,

ef saman fara að syngj' um nætur

sætar Ísafjarðardætur.

 

 Standa hamsar hans hjarta næst

Halldór BlöndalStarfsfélagi minn og kær vinur, Halldór Blöndal fyrrverandi forseti Alþingis og ráðherra, kvaddi sér hljóðs í afmælinu mínu og hélt til mín ræðu. Þar flutti hann limru sem hann hafði samið í tilefni af afmælinu mínu. Þessa limru skrifaði hann síðan inn í hefti með Limrum eftir hið góða  skáld Kristján Karlsson, en Halldór skrifaði stórsnjallan formála að bókinni. Kristín Marselíusdóttir, María K. Haraldsdóttir og HalldórEn limran sem Halldór flutti mér er svona.

 

Standa hamsar hans hjarta næst.

Hákarlsbeita ef fæst 

Halldór, Sigrún og Einar K.er hans veisludiskur

og fiskur og fiskur

súr hvalur og skata vel kæst.

 

Einar er líka Kristinn

Áður en ég hélt í afmælið, hafði mér broist símskeyti frá gömlum samstarfsmanni og félaga, sr. Hjálmari Jónssyni f.v alþingismanni og nú dómkirkjupresti og konu hans Signýju Bjarnadóttur. Í skeytinu var vísa sr. Hjálmars sem ég flutti þegar ég bauð gesti velkomna. Reyndar sendi sr. Hjálmar mér líka vísu þegar ég var fertugur. Þá sat hann í fjárlaganefnd  og sat ásamt félögum sínum önnum kafinn við verk sín að undirbúningi fjárlaga. Vísan sem hann orti nú var svona:

 

Kannski prýðir piltinn mest

pólitíska listin.

En annað finnst mér allra best:

Einar er líka kristinn.

 

 

Hálf er öldin heiðursjarl

Þau hjónin Edda og Pálmi Jónsson, sem ég hef þekkt áratugum saman frá Sauðárkróki, sendu mér sömuleiðis símskeyti, með dýrt kveðinni vísu frá Pálma, sem er svona:

 

Ofur höldur ungur karl,

örn í köldum brýnum.

Hálf er öldin heiðursjarl

haltu völdum þínum.

 

Flottur gæinn Einar

Samstarfsmaður minn til margra ára, Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra og hennar góði maður sr. Jón Þorsteinsson sóknarprestur á Mosfelli voru fjarri góðu gamin í afmælisveislunni, en sendu mér símskeyti. Þar var skemmtileg vísa, sem ég hef rökstuddan grun um að sóknarpresturinn hafi ort:

 

 

Ráðagóður ráðherrann

réttsýnn, - vel hann meinar.

Fimmtugur nú fagnar hann

flottur gæinn, - Einar.

 

Við göngum sama vegi á

Góðir vinir okkar Sigrúnar, þau Þorleifur Friðriksson og sagnfræðingur og kona hans Þóra Björnsdóttir arkitekt, sendu okkur einnig símskeyti með   skemmtilegri og góðri vísu Þorleifs, sem hjálagt fylgir.

 

Við göngum sama vegi á

en veit nokkur hvar hann er?

Veit nokkur hvaðan leið okkar lá

og veit nokkur hvert maður fer?

 

 

 Með kveðju frá kjördæmisráðinu

Einn þeirra sem ætlaði að koma í afmæli mitt  var Þórólfur Halldórsson formaður Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norð Vesturkjördæmi. Hann er eins og menn vita sýslumaður Barðstrendinga og búsettur á Patreksfirði. En því miður snjóaði á afmælisdaginn og veðurspáin þannig að ótryggt var með færð. Hann varð því í hópi margra Vestur Barðstrendinga sem varð að snúa við vegna ófærðar og komst ekki í afmælið. Þar urðum við af heimsókn margra skemmtilegra og hressra vina, því miður. En í staðinn sendi Þórólfur limrubálk sem Halldór Halldórsson bæjarstjóri las upp í afmælinu við góðar undirtektir. Svona hljóðuðu limrurnar.

 

Leist ekki á hálkuna á heiðinni

og haldlítið skyggnið á leiðinni

heldur súrt er í brotið

að hafa í grasið lotið

orðið af afmælisköku-sneiðinni

 

En heldur ég tek af því hitann

hversu margir eru um bitann

ég veit það er þröng

og biðröðin löng

sérhver að þerra af sér svitann

 

Þó logndrífa væri ekki á láðinu

ég látið get varla af háðinu

fáðu þér Einar Kristinn

aftur á krásadiskinn

með kveðju frá kjördæmisráðinu

 

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.