Pistlar

23.12.2005 : Afmælisdiktur

VeislugestirFimmtugsafmælið mitt þann 2. desember sl. var fjölsótt og skemmtilegt. Það fannst að minnsta kosti afmælisbarninu sjálfu. Og mikið stuð var á dansleiknum sem við Sigrún efndum til að lokinni afmælisdagskránni, þar sem Þórunn og Halli héldu uppi stanslausu fjöri. Í afmælið komu fjölmargir vinir mínir. Fólk sem ég hef þekkt frá bernsku, nágrannar, samstarfsfólk frá ýmsum skeiðum starfsferils míns. Fólk sem þurfti að fara um langan veg og sveitungar mínir og nágrannar. Geir H. Haarde og Halldór Blöndal fluttu mér vísur í afmælisveislunni og mágkona mín Sigfríður Þórisdóttir flutti mér sömuleiðisbrag. Veislustjórinn, Halldór Halldórssoin bæjarstjóri á Ísafirði flutti limrubrag eftir Þórólf Halldórsson formann Kjördæmisráðsins. Karlakórinn Ernir söng brag, sem og sönghópurinn Ísafjarðardætur og einnig gönguhópurinn Hallgrímur Bláskór sem við hjónin tilheyrum. Og loks fékk ég vísur sendar í símskeytum, frá sr. Hjálmari Jónssyni, fyrrv. alþingismanni og nú dómkirkjupresti, Pálma Jónssyni á Sauðárkróki, sr. Jóni Þorsteinssyni sóknarpresti í Mosfellsbæ og konu hans Sigríði Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra, Þorleifi Friðrikssyni sagnfræðingi. Og loks fékk ég í afmælisgjöf brag eftir Hákon Aðalsteinsson hagyrðing, sem Jóhann sonur hans færði mér.  Allt var þetta til þess að krydda afmælisdaginn og gera okkur hann ógleymanlegan. Nú hef ég tekið saman allan kveðskapinn og birti hann hér á heimasíðunni og vona að lesendur megi vel njóta.

Lesa meira
 

12.12.2005 : Mikið réttlætismál komið í heila höfn

AlþingiMál sem ekki hefur farið ýkja hátt var samþykkt á Alþingi á síðasta starfsdegi þess. Hér er um að ræða frumvarp sem lýtur að því er vörsluskattar eru ekki greiddir. Hingað til hafa gilt um þetta lög sem hafa reynst ótrúlega fantaleg og leitt yfir fólk alveg dæmalaust óréttlæti. Núna hefur Alþingi hins vegar lögleitt breytingar sem afnema óréttlætið og skapa sanngjarnari málsmeðferð og á allan hátt mannlegri.

Hér er verið að ræða um svo kallað vörsluskattafrumvarp, sem ég var upphaflega fyrsti flutningsmaður að. Aldrei hef ég flutt þingmál sem hefur kallað fram jafn mikil og jákvæð viðbrögð. Það var sannarlega hvetjandi. Ég veit þess vegna að það er rétt sem ég sagði á dögunum á Alþingi, að með samþþykkt þessa frumvarps héldu margir gleðileg jól, sem ella hefðu kviðið hátíð árs og friðar. Þetta er mál sem við getum verið stoltir af þingmenn.

Lesa meira
 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.