Pistlar

Sjávarútvegur er þekkingariðnaður - 30.11.2005

Sjávarútvegur er nú í vaxandi mæli þekkingargrein. Sjávarútvegurinn er framtíðaratvinnuvegur sem hentar ungu fólki með margvíslegan bakgrunn. Þessari staðreynd eigum við halda á lofti og vekja á henni athygli með öllum tiltækum ráðumStjórnvöld hafa komið að þessari þróun með þeim hætti sem skynsamlegt er. Forveri minn, Árni M. Mathiesen beitti sér fyrir sérstökum sjóði, sem fær fjármagn af fjárlögum til þess að stuðla að auknu verðmæti sjávarfangs. Svo kallaður AVS sjóður. Hann hefur nú starfað í þrjú ár og gert gríðarlega mikið gagn. Í gær kynnti ég afraksturinn á vel sóttum kynningar og blaðamannafundi. Þar kom meðal annars fram að við höfum varið ríflega 400 milljónum til nýsköpunar og þróunarverkefna á fjórum meginsviðum. Krafa er gerð til styrkþega að þeir komi að minnsta með aðra eins upphæð á móti. Þetta þýðir að þessi sjóður hefur búið til veltu í rannsóknar og þróunartengdum verkum í þágu sjávarútvegs sem nemur að minnsta kosti 1 milljarði króna. Þetta skiptir miklu máli.

Um þessi mál er fjallað í pistlinum hér á eftir

Lesa meira
 

Nýjum aðilum opnaðar leiðir til hafrannsókna - 13.11.2005

Full ástæða er til að binda góðar vonir við tvær ákvarðanir sem ég kynnti á blaðamannafundi ásamt fulltrúum Sjávarútvegsráðuneytis og Hafrannsóknarstofnunar. Og hverjar eru þessar ákvarðanir ? Um er að ræða annars vegar hækkun fjármagns sem veitt er Hafrannsóknrstofnuninni til rannsóknarverkefna. Slíkt  er jákvætt og endurspeglar vilja mjög margra. Stofnuninni hefur verið sniðinn of þröngur stakkur og úthaldstími skipanna verið of lítill. Þá hefur það gerst að við höfum eignast vísindamenn sem geta leitað svara við spurningum er lúta að hafrannsóknum. Sumir þeirra starfa utan Hafrannsóknarstofnunar. Það er gott að veita þeim tækifæri til nýrra verkefna. Slíkt getur líka laðað að ungt fólk til hafrannsóknarverkefna og aukið í raun heildarfjármagn til hafrannsókna í landinu. Auk þess sem skynsamlegt er að við leitum svara við surningum sem víðast. Það er nútímaleg nálgun í vísindasamfélginu. Þetta voru því tvær mikilvægar ákvarðanir, sem við eigum að líta á að marki ákveðin þáttaskil og verði hafrannsóknum til framdráttar í framtíðinni.

Þetta er fjallað um í þessum pistli, þar sem kynntar eru áherslur á auknar hafrannsóknir og nýtt fyrirkomulag í tengslum við þær.

Lesa meira
 

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica