Pistlar

samfylking

Að þessu hlaut að koma - 30.10.2005

Í pólitísku samhengi er fróðlegt að velta því fyrir sér hvernig  kúvending á stefnu Samfylkingarinnar í sjávarútvegsmálum sem Ingibjörg Sólrún kunngerði á aðalfundi LÍÚ, sl. föstudag, muni leggjast í þá talsmenn flokksins sem mest hafa tjáð sig um sjávarútvegsmálin. Menn eins og Jóhann Ársælsson og Össur Skarphéðinsson. Alfa og omega stefnumörkunar Jóhanns Ársælssonar hefur verið sú sem Ingibjörg Sólrún er núna að hafna. Og Össur hafði nýverið skrifað hráslagalega grein gegn forvera mínum Árna M. Mathiesen sem tæpast verður túlkuð sem stuðningur við sjónarmið núverandi formanns Samfylkingarinnar. Nema hann hafi verið að nota gamalkunnuga aðferð sem hann sem gamall sósíalisti er vitaskuld gjörkunnugur; Rússarnir skömmuðu Albaníu, þegar þeir vildu atyrða Kína. Kallast þetta Albaníuaðferðin í pólitík. Var Össur Skarphéðinsson, sem hlýtur að hafa vitað af hinni fyrirhuguðu stefnubreytingu, kannski að beina orðum sínum að formanni Samfylkingarinnar, er hann skammaðist út í Árna?

Þessir þættir innanfjarðarbakkelsins úr Samfylkingunni koma örugglega skýrar í ljós á næstunni og er lesendum þessarar heimasíðu heitið því að fá að fylgjast með. Reynt verður að greina frá atburðum eftir því sem þeir skýrast

Lesa meira
 

Koma munu sóldagar - 27.10.2005

Stundin á Flateyri í gær var öllum til sóma, sem að henni komu. Þetta var góð samvera, full af virðingu fyrir þeim sem létust og góðum hug þeim til handa sem misstu ástvini sína. Og síðast en ekki síst, sem Flateyringarnir lögðu áherslu á; full af þakklæti til allra þeirra sem lögðu lið, sýndu samhug í verki á þessum erfiðu tímum fyrir tíu árum.

Þannig er komist að orði í pistli sem fjallar um snjóflóðið hræðilega á Flateyri fyrir 10 árum. Þetta eru einhverjar erfiðustu stundirnar í lífi manns, þó ekkert hafa það verið í samanburði við það sem fólkið mátti reynda sem missti ástvini sína. Snjóflóðin Í Súðavík og Flateyri settu mark sitt á alla og þess vegna var óskaplega gott að geta komið saman í gær, látið hugann reika og minnst góðra vina og félaga.

Lesa meira
 
Sjalfstadisflokkurinn

Öflugur Sjálfstæðisflokkur - eindrægni um nýja forystu - 17.10.2005

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins nú um helgina var öflugur, endurspeglaði samhentan flokk og eindreginn stuðning við nýja forystu flokksins. Fundurinn var árétting á sterkri stöðu Sjálfstæðisflokksins, nú þegar Davíð Oddsson lætur af formennsku í flokknum. Kom það bæði fram í eindrægni og einhug á fundinum og í góðum samhljóm í stefnumótun flokksins. Bak þessum Landsfundi göngum við Sjálfstæðismenn því vígreifir og keikir til þeirra verkefna sem eru framundan.

En kjarni málsins er þessi. Landsfundurinn okkar tókst vel. Við göngum vígreif til frekari átaka og verkefna. Við höfum gott og gagnlegt umboð frá félögum okkar; fólki af öllu landinu, ungum sem öldnum, konum og körlum og úr öllum stéttum samfélagsins. Sá breiði hópur, Sjálfstæðismenn um land allt, hafa lagt línurnar, mótað stefnuna og stillt upp til átaka í þágu stefnumála okkar á næstunni.

Þannig er komist að orði í grein hér á heimasíðunni um Landsfund Sjálfstæðisflokksins sem lauk nú um helgina.

Lesa meira

 

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica