Pistlar
pic11020
Noregur er ekki á leið í ESB

Að veifa fremur röngu tré en öngvu

29.8.2005

Kosningar í Noregi fara fram nú í haust. Eins og skoðanakannanir standa, bendir því miður flest til að borgaralegu öflin fari hallloka fyrir vinstri mönnum. Slíkt mun væntanlega hafa áhrif í innanlandsmálum, en varla gætir áhrifanna í utanríkismálum. Norðmenn hafa verið eins og við, öruggir fylgjendur vestrænnar samvinnu lýðræðisríkja. Jafnaðarmenn í Noregi voru eins og jafnaðarmenn hér á landi einarðir stuðningsmenn NATO og stóðu sig vel á tímum hins vo kallaða kalda stríðs.

Gengur þvert á meginlínurnar

Varðandi aðildina að Evrópusambandinu hefur hins vegar verið uppi dálítið sérstök staða. Hægri flokkurinn og Jafnaðarmenn vilja aðild að Evrópusambandinu. Flokkur Bondevik forsætisráðherra og Vinstri sósíalistar eru sammála um að aðild að Evrópusambandinu komi ekki til greina. Afstaðan gengur semsé þvert á meginlínur, eins og nánar skal útskýrt

Í Noregi háttar svo til að meginlínurnar í stjórnmálunum eru nokkuð skýrar. Annars vegar stendur fylking borgaralegra flokka, sem nú er við völd og hins vegar vinstri flokkar, sem nú eru í stjórnarandstöðu. Það er ljóst að tapi núverandi stjórnarflokkar taka stjórnarandstæðingarnir við völdum. Það verður ekki um að ræða samstarf borgaralegs flokks og vinstri flokks. Flóknara er það nú ekki.

Algjör pattstaða

Í báðum búðunum eru til fylgjendur Evrópusambandsaðildar og einnig andstæðingar. Um það var til dæmis samið í núverandi stjórnarsamstarfi í Noregi að ekki mætti taka upp spurninguna um ESB aðild. Væri slíkt gert jafngilti það stjórnarslitum. Nákvæmlega sama verður uppi á teningnum ef vinstri flokkarnir komast í stjórn. Varðandi ESB aðild er þess vegna algjör pattstaða. Hún er ekkert á dagskrá. Ekki næsta áratuginn eða svo. Fyrir nú utan það að jafnvel í flokki Jafnaðarmanna er andstaða við ESB aðild. Formaður ungliðahreyfingar flokksins kom hingað til lands, hélt erindi á vegum Heimsýnar og lét í ljósi andstöðu sína við ESB aðild.

Fyrir nú utan það að tvívegis hafa Norðmenn reynt fyrir sér með aðild. Öflugir stjórnmálaflokkar, svo sem Hægri flokkurinn og Jafnaðarmenn hafa sameinast í vilja sínum til aðildar. Sömuleiðis verkalýðshreyfingin og atvinnulífið. En almenningur hefur aðra skoðun. Þess vegna hefur aðild tvívegis verið hafnað. Það er alveg ljóst að Norðmenn munu hika við að gera fleiri misheppnaðar tilraunir.

Að veifa fremur röngu tré en öngvu

Eins og ég benti á í pistli hér á heimasíðunni þann 18. mars sl hafa stuðningsmenn ESB aðildar Íslendinga, þrátt fyrir þetta, stöðugt reynt að blekkja umræðuna hér á landi með hræðsluáróðri um hugsanlega aðild Norðmanna og veika stöðu okkar í kjölfarið. Þetta er tilhæfulaus málflutningur. Norðmenn eru - ekki frekar en við Íslendingar - á leið inn í ESB. Þeir eru með EES samninginn, aðilar að Schengen og í kjörstöðu gagnvart ESB. Kosningarnar nú í næsta mánuði munu skýra stöðu Norðmanna í þessum efnum. Vonandi fáum við hlé frá lygafréttum af norskri ESB aðild um einhverja hríð. Þó við verðum líka að sýna því skilning að ESB sinnar hér á landi með sinn afspyrnu vonda málstað þurfi stundum að grípa til þess alþekkta ráðs þeirra sem rökþrota eru; að veifa fremur röngu tré en öngvu.



Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica