Pistlar
196_9681

Ferðahelgarnar eru merkilegar um margt

28.7.2005

Þessar svo kölluðu ferðahelgar eru merkilegar um margt. Mekilegar fyrir þær hluta sakir að svo stór hluti einnar þjóðar axlar sín skinn og heldur í ferðalög. Þetta er svo sem ekki íslenskt sérfyrirbrigði; ferðahelgar eru líka þekktar í öðrum ríkjum og þykja sjálfsagðar. Það er líka sjálfsagt að fólk reyni að nýta sér hið íslenska sumar til hátíðarbrigða og ferðalaga. Þá gefst tækifæri til þess að kynnast landinu, öllu því sem upp á er boðið og njóta einfaldlega íslenskrar náttúru í sinni fegurstu sumarmynd.

Ferðahelgarnar svo kölluðu hafa líka það hagnýta gildi að laða fólk til þess að sjá landið og ekki er ólíklegt að slík upplifiun kveiki áhuga á frekari ferðalögum um Íslands fögru byggðir. Þannig má ætla að ferðalögin sem tug þúsundir íslenskra fjölskyldna leggi í nú í dag, á morgun eða hinn, kveiki áhuga neistann í brjósti ungs Íslendings sem síðar vill skoða landið sitt.

Annars eru Íslendingar óskaplega duglegir við að ferðast um landið. Kannanir sem við höfum látið gera hjá Ferðamálaráði sýna okkur það að mikill meirihluti Íslendinga ferðast um landið sem ferðamenn á ári hverju, í einhverjum mæli. Og ennþá fleiri hyggja á slík ferðalög eða hafa á þeim áhuga. Ferðalög um landið eru líka að verða æ einfaldari. Flestir eiga bíla, vegirnir batna, gistimöguleikum er fjölgandi, afþreying eykst og verður fjölþættari, svo líklegra er að allir finni sitthvað við sitt hæfi.

Svo má ekki gleyma því að Íslendingar hafa fjárfest fyrir milljarða króna í búnaði til ferðalaga innanlands. Nýjir bílar - eitthvað á annan tug þúsunda - verða fluttir inn til landsins á árinu. Menn hafa á undanförnum árum væðst mjög fellihýsum, og tjaldvögnum. Nú eru hjólhýsin og húsbílarnir komnir í hópinn. Allt eru þetta tæki til þess að ferðast á eð með sér hér innanlands. Þessi milljarðafjárfesting er því öðrum þræði fjárfesting í innviðum ferðaþjónustu. Það er gott. Bílaleigubílum hefur fjölgað, þeir eru orðnir ódýrari, enda fjölgar þeim óðum, einkum útlendu túristunum, sem kjósa bílaleigubíla sem ferðamáta

Ísland hefur líka upp á svo gríðarlega margt að bjóða. Útlendingar koma hingað fyrst og fremst til þess að njóta íslenskrar náttúru. Ætla má að hið sama gildi mjög um landann. Og athyglisvert er líka- svo enn sé vitnað í kannanir Ferðamálaráðs - að flestir óska sér fremur fábrotinnar afþreyingar. Náttúruskoðun, gönguferðir, sund og golf, svo nokkrir helstu þættirnir séu nefndir. Og þar sem það á síðan við, má bæta við áhuga margra á að fara á hestbak, eða  skreppa í siglingu. Allt er þetta aðgengilegt þegar, víðast hvar um landið

Þess vegna er ekkert annað eftir en að hvetja Íslendinga til dáða. Skoða landið, fara sem víðast, heimsækja ekki síst slóðir sem eru ekki endilega hinar sígildu ferðamannaleiðir. Landið er svo margbrotið og víða getur að líta náttúruperlur, eða eitthvað óvænt, sem við getum notið. Megum við eiga góða ferðahelgi, sjálfa Verslunarmannahelgina og vonandi tekst okkur að komast í gegn um þessa miklu umferðarhelgi án teljandi óhappa eða slysa.



Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica