Pistlar
Þagað um sumt, en sífrað um annað
Þögnin er stundum svo óskaplega lýsandi fyrir málflutning sumra. Grein Lárusar G. Valdemarssonar bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ á bb.is er ákaflega lýsandi fyrir þögnina sem hún ber í sér. Greinin er byggð upp sem svar við grein sem birtist hér á www.ekg.is og birtist síðan á bb.is þar sem ég fjallaði um Samfylkinguna. "Svar" Lárusar var hins vegar enn ein útgáfan af ólundarlegu nöldri þeirra Samfylkingarmanna; lýsing þeirra á samfélaginu eins og það birtist þeim sjálfum og meðvituð tilraun til þess að forðast efni minnar greinar.
Þetta er mér í sjálfu sér að meinalausu, en þögnin getur hins vegar verið svo óskaplega lýsandi, þegar henni er beitt með svipuðum hætti og Lárus kýs að gera í grein sinni.
Hvert var þá tilefnið?
Rifjum upp efni minnar greinar: Greinin var í sem skemmstu máli stutt ábending um að Samfylkingin hefði lítið uppskorið af allri þeirri fjölmiðlaathygli sem langvinnur formannsslagur veitti, kastljósi á landsfund flokksins og hefðarviðtölum við formanninn. Hefði þó mátt ætla að samanlagt hefði þetta getað fært flokknum amk. tímabundið fylgi í skoðanakönnunum. Þegar svo við bættist að aðstæður í stjórnmálaumræðunni voru forystuflokki Samfylkinarinnar einkar hagstæðar hefði mátt ætla að slíkt færði flokknum góðan byr í skoðanakönnunum Gallups.
Slíkt hefur þó ekki gerst. Gallup mælir fylgi flokka á löngu tímabili. Ekki verður séð af gögnum skoðanakannana að hinar hagstæðu pólitísku aðstæður hafi nokkuð náð að tomma fylgi Samfylkingarinnar áfram. Það er með öðrum orðum ljóst að hið mikla kastljós sem beindist að Samfylkingunni sýndi eitthvað sem vakti ekki hrifningnu almennings í landinu.
Þetta hlýtur að vera áhyggjuefni innan flokksins. Enda er öllum ljóst að öll þessi atburðarrás hafði þann tilgang meðal annars að efla og styrkja Samfylkinguna. Það gerist ekki og af grein Lárusar G. Valdemarssonar verður ekki annað ráðið en að hann láti sér í næsta léttu rúmi liggja. Það er auðvitað hans mál og að þessu leyti erum við sammála.
Skrýtin sýn á þjóðfélagið
Ólundarbragurinn sem einkennir hins vegar grein Lárusar, sem er þó jafnan glaðsinna maður og ljúfur í lund, gæti hins vegar átt sér þá skýringu að hann teldi, þrátt fyrir allt, árangur flokks síns ekki viðunandi. Það er skiljanlegt. Forystumaður í flokki, eins og Lárus er sannarlega, er örugglega ekki ánægður með árangurinn og tekur þá vonbrigði sín út á okkur dyggum lesendum bb.is.
Og svona er mennirnir misjafnir. Fyrir honum er samfélag okkar bersýnilega sýrt spillingu og hroða. Þetta er sú eina mynd sem kemur honum í hug þegar hann skyggnist um gáttir í þjóðfélagi sem hefur verið að vaxa á undrahraða, ná árangri sem aðrar þjóðar líta á sem undrunar- og öfundarefni og hefur breyst almennt til mikils batnaðar á furðu skömmum tíma. Þetta er þjóðfélag sem hefur nú úr að moða svo miklu meiru en áður og getur þess vegna staðið svo miklu betur að flestu en áður. Þó er gríðarlega margt sem við þurfum að lagfæra. Það er mjög margt að í okkar þjóðfélagi; hlutir sem við viljum breyta. En vegna stjórnvaldsstefnunnar og þess árangurs sem við höfum náð á undanförnum árum, undir forystu Sjálfstæðisflokksins og í góðu póilitísku samstarfi við Alþýðuflokkinn og Framsóknarflokkinn höfum við til þess meiri og betri tækifæri en nokkru sinni áður.
Samfylkingin á réttri leið í ýmsum málum
Og athyglisvert er nú að lesa það hvernig Samfylkingin er smám saman að færa sig nær þessum gildum. Að sönnu skilar sá flokkur auðu í margvíslegum málum, eins og vakin hefur verið athygli á hér í þessum pistlum. En hitt skal ljúflega viðurkennt, að Samfylkingin er á réttri leið í mörgum málaflokkum. Afstaða flokksins til úrlausnarefna í velferðarmálum er til dæmis gott dæmi um slíkt. Á þetta bendir góður flokksfélagi minn Ólafur Örn Arnarson, yfirlæknir og fyrrum formaður heilbrigðisnefndar Sjálfstæðisflokksins í athyglisverðri grein í Morgunblaðinu 29. maí sl. sem ástæða er til að halda á lofti og til haga
Það er því fráleitt öll nótt úti enn hjá Samfylkingunni. En það breytir því ekki að hylli flokksins hefur ekkert aukist, þrátt fyrir öll hefðarviðtölin, fjölmðlaathyglina og sjálfan landsfundinn. Það er staðreynd, sem er ómótmælanleg, á henni var vakin athygli hér á þessari heimasíðu og þegar við henni brugðist af hálfu áhrifamikils flokksmanns, er árangurinn þögn!
