Pistlar
Velsældarþjóðfélag en ekki útópía
Þetta eru auðvitað ekkert nema góð tíðindi. Það er forsenda alls annars að auka verðmætasköpunina í landinu. Þar með höfum við meira til skiptanna. Þess vegna getum við áfram aukið fjármagn til velferðarmála og annasrs þess sem við viljum, jafnframt því að lækka skatta. Og þetta erum við að gera núna.
Við verjum meiru fé en flestar aðrar þjóðir til heilbrigðismála, þó svo að þjóðin sé ung. Við höfum stóraukið fjármagn til menntamála og rannsóknar og vísindastarfs. Við verðum með hærra hlutfall nemenda í árgangi á næsta ári í framhaldsskólum, en nokkru sinni fyrr. Við búum í dreifbýlu landi og verjum stærri hluta til samgöngumála en almennt gerist og gengur. Við höfum á einni öld fært okkur úr moldarkofunum og af árabátunum inn í velsældarþjóðfélag, sem ekkert stenst samjöfnun við, nema bestu, ríkustu og mestu velsældarþjóðfélög heimsins.
Og kaupsýslumönnum okkar dugir ekki okkar litla land til finna kröftum sínum viðspyrnu. Þeir leita út í heim. Við erum smám saman að breyta þjóðfélaginu og breikka grundvöll þess. Núverandi ríkisstjórn hefur skapað lagaumhverfi sem hefur leyst krafta úr læðingi og aukið fjölbreytni atvinnulífsins. Það er lygi sem stjórnarandstaðan heldur að okkur að einblínt sé á fáeinar atvinnugreinar, á borð við álverksmiðjur. Við vitum betur. Ríkisstjórnin hefur verið í forystu með stefnumótun, sem hefur gefið atvinnulífinu byr undir báða vængi og auðveldað athafnasömu fólki að finna sér verkefni. Þar er af gríðarlega mörgu að taka.
Velsældarþjóðfélag en ekki útópía
En auðvitað er óskaplega margt sem við þurfum að færa til betri vegar. Og forsenda þess er auðsköpunin sem við höfum séð. Við vitum nefnilega að það er auðveldara að ráða bót á vandanum þegar fjárhagslegar aðstæður gera okkur það kleyft. Enn er til fátækt. Enn eru margir sem ekki ná að fóta sig í velsældarþjóðfélaginu. Og enn er okkar mesta þjóðfélagsmein byggðaröskunin, sem kallar alveg óskapleg sárindi og óréttlæti fram í okkar þjóðfélagi. En vegna þess hversu vel okkur hefur tekist að byggja upp þjóðfélag okkar, höfum við aldrei verið því nær að geta leyst þessi vandamál. Auðvitað ekki að öllu leyti og ekki fyrir alla. Slíkt þjóðfélag verður aldrei búið til á jarðríki. En við getum hins vegar gert ennþá betur. Það er meðal annars verkefni okkar stjórnmálamanna að gera slíkt. Við höfum nú betri tæki en nokkru sinni áður til slíks. Velsældarþjóðfélagið hefur nefnilega lagt grunn að betra Íslandi
