Pistlar

196_9681

Ferðahelgarnar eru merkilegar um margt - 28.7.2005

Ísland hefur líka upp á svo gríðarlega margt að bjóða. Og athyglisvert er - svo enn sé vitnað í kannanir Ferðamálaráðs - að flestir óska sér fremur fábrotinnar afþreyingar. Náttúruskoðun, gönguferðir, sund og golf, svo nokkrir helstu þættirnir séu nefndir. Og þar sem það á síðan við, má bæta við áhuga margra á að fara á hestbak, eða skreppa í siglingu. Allt er þetta aðgengilegt þegar.

Þess vegna er ekkert annað eftir en að hvetja Íslendinga til dáða. Skoða landið, fara sem víðast, heimsækja ekki síst slóðir sem eru ekki endilega hinar sígildu ferðamannaleiðir. Landið er svo margbrotið og víða getur að líta náttúruperlur, eða eitthvað óvænt, sem við getum notið

Lesa meira

 
samfylking

Þagað um sumt, en sífrað um annað - 17.7.2005

Samfylkingin hefur búið við pólitískar kjöraðstæður. Engu að síður mælist fylgi flokksins ekki meira en áður. Flokkurinn hefur skilað auðu í mörgum veigamiklum málum, en í öðrum er athyglisvert að hann veitir svipuð svör og Sjálfstæðisflokkurinn.

Athyglisvert er þó hvernig flokksmenn hans bregðast við gagnrýni á flokkinn. Í stað þess að svara henni, er dregin upp mynd af samfélagi okkar sem er svo víðs fjarri raunveruleikanum. Mynd af samfélagi stöðnunar og spillingar, þó við blasi öllum sem vilja sjá að þjóðfélag okkar er kröftugt og í miklum vexti.

Grein Lárusar G. Valdemarssonar bæjarfulltrúa í Ísafjarðarbæ í bb.is er einmitt gott dæmi um þetta sífur samfylkingarfólks. Grein hans átti að vera svar við pistli héðan af heimasíðunni, en var fyrst og fremst lýsandi fyrir þögnina

Lesa meira
 
Lyfjaframleidsla

Velsældarþjóðfélag en ekki útópía - 11.7.2005

Ísland er land mikilla tækifæra. Við sjáum einmitt þessa dagana birtast fréttir af ótrúlegum lífskjarabata. 40% aukning ráðstöfunartekna að raungildi á einum áratug er auðvitað hreint ævintrýri. Við getum horft til baka, hvert fyrir sig ein tíu ár. Setjum okkur í huganum niður árið 1995 og gerum okkur samanburðinn í hugarlund. Þetta ár er okkur ekki fjarlægt, raunar undra nálægt. En frá þessum tíma hefur gríðarlega margt breyst til batnaðar í þjóðfélaginu okakr í heild.

Við höfum nú til ráðstöfunar 40 prósent meira en þá. Þó var árið 1995 ekkert vesældarár. En við höfum bara verið að rífa okkur upp bæta verðmætum í þjóðarbúið og höfum meira til skiptanna. Við sjáum bara í neyslu fólks, bílakostinum, hjólhýsaflotanum, utanlandsferðunum og húsakynnunum, að lífskjörin hafa batnað og tiltrú fólks á framtíðinni aukist.

Lesa meira
 
samfylking

Vonbrigðatímar Samfylkingarinnar - 6.7.2005

Það fer ekkert á milli mála að ný skoðanakönnun Gallups er mikil vonbrigði fyrir Samfylkinguna. Landsfundur flokksins var haldinn með mikilli fjölmiðlaathygli í lok maí. Dagana á undan hafði kastljósið beinst mjög að flokknum. Á landsfundinum var kunngert um nýjan formann, sem fékk í kjölfarið endalaus hefðarviðtöl, sem hefðu át að nægja til jákvæðrar ímyndar fyrir flokk og formann. Pólitísk átök hafa verið með þeim hætti að vænta hefði mátt þess að stærsti stjórnmálaflokkurinn ynni á.

Með öðrum orðum. Aðstæður fyrir Samfylkinguna virtust sérlega hagfelldar. Á þeim bænum væntu menn enda mikils.

En nú liggja fyrir tvær mælingar frá Gallup. Maí könnun sem mælir fylgi flokkanna vikurnar í aðdraganda landsfundar Samfylkingarinnar og júní könnun sem mælir árangurinn fyrsta mánuðinn eftir landsfundinn og formannsskiptinn. Og mælingin er skýr. Fylgi flokksins tommast ekki. Flokkurinn er enn á sama stað á kvarðanum.

Lesa meira
 

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica