Pistlar
Hrafnseyri
Hrafnseyri

Framfarir og þjóðfrelsi

26.6.2005

Í ræðu sinni tefldi Sigríður saman með snilldarlegum hætti, ímynduðum fundi þeirra feðga Jóns Sigurðssonar og föður hans Sr. Sigurðar Jónssonar á Hrafnseyri.

Sá yngri ólgaði af framfaraþrá og í hans huga var barátta fyrir viðskiptafrelsi og frelsi þjóðarinnar sem óslítanleg keðja. Honum var ljóst að frelsi í viðskiptum var forsenda framfara á efnahagssviðinu og því í raun forsenda þess að sjálfstæði okkar stæðist til langframa. Þarna endurspeglaði hann hina frjálslyndu hugmyndafræði sem fór sem eldur um sinu hugmyndaheims Evrópu á 19. öld.

Hinn eldri var fulltrúi hinna gildu sjónarmiða gamla bændasamfélagsins. Talsmaður gróinna gilda og efasemdarmaður um hina pólitísku baráttu sem sonurinn stóð fyrir.

Í meðferð Sigríðar varð orðræðan ógleymanleg; snilldarlega sett fram og sanngjörn báðum sjónarmiðum. En okkur er vitaskuld ljóst, vegna þess að við höfum söguna að vopni, að forsenda efnahagslegs árangurs okkar var vitaskuld efnahagsfrelsið. Gamla búauðgisstefnan, höft í viðskiptum þjóða í milli og efnahagsleg skipulagshyggja skilaði engum árangri.

Þegar menn spyrja nú hvert við stefnum í atvinnulífi okkar, er svarið augljóst. Við erum að auka fjölbreytnina vegna þess að við höfum gefið atvinnulífinu aukið svigrúm. Snjallir kaupsýslumenn leita úrlausna vegna þess að þeim hefur verið gefinn kostur á slíku. Stjórnvöld reyna ekki að stýra þróuninni, né niðurstöðu hennar. Þar leitar efnahagslífið í þær áttir, sem allir þeir sem starfa á markaðnum kjósa. Val þeirra er örugglega misjafnt. En markaðurinn gerir ráð fyrir að enginn einn ráði ferð. Markaðurinn flytur boð frá neytanda til framleiðanda og seljanda. Þess vegna er markaðurinn hagkvæmastur. Hann flytur boð og kunngerir hvert skynsamlegast sé að stefna. Markaðsvæðing þjóðfélags okkar hefur þess vegna skilað meiri hagkvæmni og stækkað hagkerfið.

Vissulega fylgja margir kvillar. Tilhneiging til fákeppni og einokunartilburðir á tilteknum sviðum hér á landi eru áhyggjuefni. Fjölmiðlaþróunin er einna skýrust að þessu leyti. Og því er það áhyggjuefni að ekki hefur verið nægjanlegur póitískur stuðningur við ákveðnari reglur og aðgerðir á þessum sviðum. Ætla verður hins vegar að fáum dyljist þörfin og að tíminn vinni með en ekki móti slíkum hugmyndum.

 



Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica