Pistlar
Léleg staða þorsksins er óútskýrt mál
Það er ekki þar fyrir að ekkert hafi verið rætt um þessi mál. Þvert á móti. Staða fiskistofna er sígilt umræðuefni. Þar hafa komið að málum lærðir og leikir. Sjálfur hefur sjávarútvegsráðherra örvað slíka umræðu. Meðal annars með fyrirspurnaþingum, þar sem sérfræðingar með mismunandi skoðanir mættu. Leikmenn með mikla þekkingu gátu lagt fram efni og starfsfólk í sjávarútvegi, áhugafólk og almenningur allur átti þess kost að blanda sér í umræðuna.
Ræfilsleg staða þorskstofnsins
Ræfilsleg staða þorskstofnsins vekur þeim mun meiri undrun að ýsa veður nú uppi sem aldrei fyrr. Rækjustofninn er í sögulegri lægð. Því var þó haldið fram að öfugt samband væri á milli stærðar þorskstofns og rækjustofns; þeim mun stærri þorskstofn, þeim mun minni rækjustofn - og öfugt.
Og menn nefna að loðna sé veidd í of miklum mæli opg fæðan þannig tekin frá þorskinum. En þá ber að spyrja: Hvernig má það vera þegar það gerist nú nær árvisst að við náum ekki einu sinni öllum loðnukvótanum? Er þá ekki komið að næstu spurningu; er hugsanlegt að veiðiaðferðin - stóraukin flottrollsveiði sé stórskaðleg. Því halda mjög margir þaulreyndir loðnuskipstjórar fram. Þetta verðum við að ræða og rannsaka hleypidómalaust.
Eflaust láta einhverjir sem þeir hafi öll svör á reiðum höndum um þessi mál. Svo er þó ekki í raunveruleikanum. Það er sjálfsbirgingsháttur að láta sem við kunnum öll svörin. Við vitum þau ekki öll. En við verðum að leita þeirra. Það er kjarni málsins
Umhverfisáhrif
Grunur beinist á hinn bóginn mjög að umhverfsþáttum. Ýsan er í vexti, skötuselur einnig, lýsa er farin að sjást. Ýsa er um allan sjó lætur sjá sig þar sem hennar gætti aldrei. Skötuselurinn er kominn miklu norðar, sést í miklum mæli, tegund sem sást bara til hátíðarbrigða fyrir sunnan land fyrir fáeinum árum.
Og hvernig má það vera að þorskurinn mælist ekki í tækjum vísindamanna, en virðist vera vaðandi um allan sjó að sögn sjómanna. Menn hafa flúið þorskinn í allt vor og lengur. Erum við stödd í einhverri óskiljanlegri þversögn?
Í leit að sannleika
Allt eru þetta spurningar sem nauðsynlegt er að fá svarað. Og þær verða örugglega fleiri. Framundan er mikil umræða. Það er ástæða til þess að hvetja til þess að hún verði málefnaleg. Markmið hennar getur ekki orðið að leita að sökudólg eða tilnefna blóraböggul. Málið er alltof alvarlegt til slíkra æfinga. Við eigum bara eina skyldu og hún er að leita sannleikans í þessu máli. Sú skylda er við okkur sjálf, en umfram allt við komandi kynslóðir.
