Pistlar
Einar Kristinn - Netsamband
Formleg opnun!
Formleg opnun á heimasíðunni fór auðvitað fram við höfnina í Bolungarvík

Kynnt er - ný og breytt heimasíða

14.5.2005

Heimasíðan
Heimasíðan mín er nú að verða þriggja ára. Hún hefur orðið vettvangur skoðana minna og tækifæri til þess að láta í ljósi sjónarmið mín hvenær sem er og hvernig sem mig hefur langað til. Þetta er óskaplega gaman, að vera ritstjóri eigin málgagns. Ekki síst þegar maður er gamall ritstjóri hefðbundins miðils.

En heimasíður þarf að þróa. Heimasíðan mín , www.ekg.is hefur litlum breytingum tekið á þessum tíma. Póstlisti er nýlega orðinn virkur og hefur fengið góðar móttökur. Nú er ég hins vegar að kynna nýja útgáfu heimasíðunnar. Hún byggir á þeim gamla merg sem heimasíðan hefur grundvallast á. En síðan er þróað upp nýtt fyrirkomulag, eins og nú má sjá.

Heimasíðuna mína opna ég á laugardag - laugardagur til lukku - að lokinn þingtörninni. Ég þakka starfsmönnum Hugsmiðjunnar fyrir þeirra vinnu og síðan starfsmönnum Jónsson og Lemacks, sem hönnuðu útlitið. Ég er sjálfur afar ánægður með hvernig til hefur tekist og vonandi á það við um aðra


"Lífleg, regluleg skrif"
Þegar ég fylgdi heimasíðunni minni úr hlaði þann 1. ágúst árið 2002 gerði ég það með eftirfarandi hætti:

"Markmið mitt er að halda úti líflegum, reglulegum skrifum um hvaðeina það sem ég hef áhuga á að tjá mig um. Þannig er hægt að verða beinn þátttakandi í tafarlausri umræðu um mál sem höfða til manns hverju sinni. Þessi heimasíða sem hér birtist mun taka breytingum, eftir því sem fram vindur. Hér er í upphafi lagt upp með pistla, birtingu á greinum úr blöðum, tilvísunum í þingmál mín og ræður á Alþingi. En áfram verður haldið veginn og heimasíðan þróuð."  
 
 

Nú hefst bloggið hjá mér
Þetta er enn í fullu gildi. En auk þess að vera vettvangur eigin skoðana verður fjölbreytnin aukin. Ég hef frá upphafi reynt að auka mjög við tenglasafnið með það að markmiði að í gegn um heimasíðuna gætu menn sótt sér aðgang að margvíslegum skrifum; jafnt um stjórnmál, sveitarstjórnarmál, almennan fróðleik, sjávarútveg, ferðamál. Í gegn um tegnlasafnið hafa menn beinan aðgang að fjölbreytilegum fjölmiðlum, hérlendum jafnt og erlendum, heimasíðum sveitarfélaga og fyrirtækja og svo framvegis.

Nú ætla ég að reyna að byrja að blogga. Þetta er skemmtilegt form sem tölvutæknin hefur skapað aðstæður til. Sjálfur hef ég ekki beitt því. En börnin mín, Guðfinnur Ólafur og Sigrún María eru flinkir bloggarar og halda úti eigin síðum. Þangað má komast með því að fara inn á slóðir þeirra http://www.guffster.blogspot.com/ og http://www.sigrunql.blogspot.com/ Nú er að sjá hvort kallinn standist þeim nokkuð snúning.

Fleiri nýjungar getur líka að líta, sem ég hvet ykkur lesendur góðir til að kynna ykkur.  
 
 
 Ég kynni til sögunnar Ögmundur Jónasson
Síðast en alls ekki síst, er ég sérlega stoltur af því að kynna til sögunnar nýjan dálk, sem ég kalla Önnur sjónarmið. Þar býð ég fólki að taka til máls og skrifa greinar. Hugmyndin er að leita ekki síst eftir sjónarmiðum, sem ætla má að séu ekki þau sömu og einkennt hafa heimasíðuna mína. Þarna verða greinar eftir stjórnmálamenn, fræðimenn, fólk úr atvinnulífinu og sem fjölbreytilegastan hóp fólks úr mörgum geirum þjóðfélagsins.

Það er mér sérstakur heiður að kynna fyrsta pennan til sögunnar. Ögmundur Jónasson formaður þingflokks Visntri grænna ríður á vaðið. Ögmundur er einhver öflugasti stjórnmálamaður á Alþingi núna, heldur úti kröftugri heimasíðu ogmundur.is. Við höfuim oft tekist á stundum harkalega og hann er ekki auðveldur í slíkum bardögum. En hann er heiðarlegur og góður félagi

Það fer því vel á því að fá slíkan kappa til þess að skrifa fyrsta gestapistilinn á heimsíðuna. Og því kynni ég til sögunnar með formlegum hætti, Ögmund Jónasson formann þingflokks Vinstri grænna.  

 

Gott samband við lesendur
Góð heimasíða þarf að eiga tryggja lesendur. Slíkt gerist því aðeins að greinarnar sem þar birtast hafi almenna skírskotun. Gott væri að fá viðbrögð lesenda. Póstfang mitt er ekg@ekg.is, ellegar einarg@althingi.is.

Ég vek athygli á því að auðvelt er að verða áskrifandi að heimasíðunni með því að skrá sig á póstlista hér á síðunni. Þá fá lesendur tilkynningar þegar nýjir pistlar birtast. Blogg skrif mín verða ekki tilkynnt sérstaklega.

 

Með góðri sumarkveðju

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica