Minnkum brottkast án aukins eftirlits
Brottkast á afla er raunverulegt vandamál í íslenskum sjávarútvegi. Örugglega þó minna en við þekkjum víða annars staðar. Við getum núna mælt umfangið býsna vel og sjáum að við höfum náð árangri. Mælingar vísindamanna okkar ríma vel við skoðanakannanir á meðal sjómanna um þetta vandamál. Það er sem sé ljóst að umfang brottkastsins er minna en margir hafa haldið fram, en meira en þeir sem hafa gert minnst úr vandanum hafa sagt
Og af því við getum mælt umfangið þá getum við frekar lagt á ráðin með úrræði. Það eigum við hiklaust að gera. Við eigum að þróa áfram hagrænar aðferðir. Endalaus aukning eftirlitsiðnaðar er ekki skynsamleg á þessum sviðum fremur en öðrum.
Lesa meiraStefnulaus með klofinn skjöld
Einhverjum lengsta og harðvítugasta formannsslag í íslenskri stjórnmálasögu síðustu ára er lokið. Baráttunni um formannsstól Samfylkingarinnar lauk á landsfundi flokksins um helgina. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrum forsætisráðherraefni flokksins bar sigurorð af Össuri Skarphéðinssyni sigursælum flokksformanni. Og má þá kannski segja að enn sannist að laun heimsins séu vanþakklæti.
Auðvitað láta menn sem ekkert sé. En þjóðin veit betur. Samfylkingin hefur logað stafna á milli í miklum átökum. Baráttan einskorðaðist ekki við formannsstólinn. Það var barist um alla forystupósta flokksins og hörð orð hafa síðan fallið. Það er ljóst að langt er í að sárin grói.
Nýkjörin formaður lagði áherslu á málefnahluta flokksins í lokaræðu sinni. Þó skilar flokkurinn auðu í stórum málaflokkum að því er skilið verður. Ekki er hirt um að álykta um stór mál. Ágreiningsefnum er vísað inn í framtíðina. Þetta eru sennilega samræðustjórnmálin í öllu sínu veldi.
Lesa meira
Kynnt er - ný og breytt heimasíða
Heimasíðan mín er nú að verða þriggja ára. Hún hefur orðið vettvangur skoðana minna og tækifæri til þess að láta í ljósi sjónarmið mín hvenær sem er og hvernig sem mig hefur langað til. Þetta er óskaplega gaman, að vera ritstjóri eigin málgagns. Ekki síst þegar maður er gamall ritstjóri hefðbundins miðils.
En heimasíður þarf að þróa. Heimasíðan mín , www.ekg.is hefur litlum breytingum tekið á þessum tíma. Póstlisti er nýlega orðinn virkur og hefur fengið góðar móttökur. Nú er ég hins vegar að kynna nýja útgáfu heimasíðunnar. Hún byggir á þeim gamla merg sem heimasíðan hefur grundvallast á. En síðan er þróað upp nýtt fyrirkomulag, eins og nú má sjá.
Heimasíðuna mína opna ég á laugardag - laugardagur til lukku - að lokinn þingtörninni. Ég þakka starfsmönnum Hugsmiðjunnar fyrir þeirra vinnu og síðan starfsmönnum Jónsson og Lemacks, sem hönnuðu útlitið. Ég er sjálfur afar ánægður með hvernig til hefur tekist og vonandi á það við um aðra
Lesa meira"...og barist var á meðan hjá þú sast"
Styrjaldir vekja ætíð margvíslegar og flóknar siðferðilegar spurningar. Orsakir stríðs eru margslungnar en eru alltaf og ævinlega ofnar saman við siðferðileg álitamál. Þetta er sjálfsagt að rifja upp nú er menn minnast 60 ára stríðsloka seinni heimsstyrjaldar.
Er réttlætanlegt að taka þátt í stríði sem hefur þann yfirlýsta tilgang að yfirbuga óvin með valdi ? Svarið er já. Slíkt getur verið réttlætanlegt og raunar algjörlega óhjákvæmilegt, ef aðstæður eru þannig. Það getur kostað átök að losna við meinvætti á borð við Adolf Hitler, eða Saddam Hussein.
Lesa meira
