Pistlar
Mannlegur máttur getur varist snjóflóðum
Tvennt getum við einkum lært af snjóflóðahættunni sem lýst var yfir á Vestfjörðum á dögunum. Í fyrsta lagi að viðvörunarkerfið sem búið er að byggja upp virkar og það á rétt á sér. Í annan stað er ljóst að varnarmannvirkin sem hafa verið byggð gera gagn og standa algjörlega undir væntingum.
Við vitum með öðrum orðum að sú þekking er til staðar að við getum varað við snjóflóðahættu, ef leikreglum er fylgt og vel er fylgst með, eins og nú er farið að gera. Í annan stað hafa sérfræðingar okkar þá þekkingu til að bera að hanna og reisa mannvirki sem verja byggðir. Mannlegur máttur getur með öðrum orðum varist þeirri hræðilegu vá snjóflóðunum. Þetta er nokkuð sem okkur ber að hafa í huga. Það er sum sé unnt að búa til varnir fyrir byggðarlög sem nú eru varnarlaus gagnvart hættuástandi sem upp getur komið. Þetta skiptir öllu máli.
Tryggjum öryggið - Við getum það
Hin bitra, sára og grimma reynsla sem við fengum af snjóflóðunum á Vestfjörðum á árunum 1994 - 1995 líður okkur aldrei úr minni. Síðan þá höfum við gert miklar ráðstafanir; byggt varnargarða, fært byggð, reist upptökumannvirki, aflað okkur þekkingar, aukið viðbúnað og annað sem aukið hefur öryggi. Öryggisstuðlarnir eru háir; nægilega háir til þess að tryggja líf og öryggi fólksins í byggðunum sem ella byggju ekki við viðunandi aðstæður.
Við ættum því að leggja niður deilur og einbeita kröftum okkar að uppbyggjandi aðgerðum. Sannarlega eru þetta flókin mál og viðkvæm. Þau snúast ekki bara um eigur fólks, heldur má ekki gleyma því að um er að ræða sjálf heimilin. Við eigum því að nálgast viðfangsefnið af virðingu og nærgætni, eins og allir vilja vitaskuld gera. Síðan er brýnt að ná niðurstöðu, sem aðeins getur haft eitt að markmiði. Tryggja öryggi og gera það að verkum að fólk geti lifað og búið á heimilum sínum, í byggðarlögunum sínum, stundað vinnu og alið upp börnin sín. Þetta er viðfangsefnið sem við eigum að takast á við enn, þar til við höfum lokið því ætlunarverki sem við vildum ljúka, þegar lög um snjóflóðavarnir og tengda hluti voru sett á Alþingi.
