Pistlar

Kjarasamningar kennara eru ekki vegvísar á launastefnuna

18.11.2004

Kennarasamningarnir sem skrifað var undir í gær fela ótvírætt í sér launahækkanir umfram það sem gerist á almennum markaði. Þeir fela einnig í sér hækkanir umfram það sem ríkisvaldið getur samið um. Það er með öðrum ljóst að engar efnahagslegar forsendur eru fyrir því að þessar kjarabætur nái út yfir allt þjóðfélagið. Aðrir launahópar verða almennt að sætta sig við minna.

Samanburðarfræðin sem nú mun blómstra sem aldrei fyrr munu fela í sér tilraun til kennslu um eitthvað allt annað. Það er hins vegar algjörlega óábyrgt að fallast á slíkt. Kjarasamningar kennara eru enginn vegvísir á launastefnuna í landinu. Það er kjarni málsins og undan því verður ekki vikist.

Sérstaða kennara?

Kennaraverkfallið var bæði strangt og langt. Það var drifið áfram af þeirri vissu kennara að þeir ættu að fá meiri launahækkanir en áður hefði samist um og meiri hækkanir en aðrir launahópar í landinu. Allur málflutningur á bak við kjarabaráttuna var á þann veginn.

Um réttmæti sjónarmiðanna geta menn deilt. En þetta voru rökin. Nú verður því spurt? Munu þeir sem þessu héldu fram í kjaradeilunni, segja það áfram eftir að skrifað hefur verið undir nýjan kjarasamning?

Var ekki örugglega mark takandi á yfirlýsingunum

Launakrafa kennara naut stuðnings í samfélaginu á þessum forsendum. Að sérstaða þeirra væri fyrir hendi á launasviðinu. Stjórnarandstæðingar gengu fram fyrir skjöldu í þessum málflutningi.

Nú eru kjarasamningarnir orðnir að veruleika. Þeir munu hækka útgjöld sveitarfélaganna. Þeir munu leiða til aukinna lífeyrisskuldbindinga sem ríkissjóður ábyrgist. Upphæðirnar liggja ekki fyrir núna, en þær eru örugglega vel umfram 10 milljarða. Þetta verða framtíðarútgjöld ríkissjóðs, sem fara þá ekki til annarra hluta. Þessu mega menn ekki gleyma.

Nú er komið að skuldadögum þeirra sem héldu á lofti því sjónarmiði að staða kennara væri sérstök. Þeir ættu einir að fá launahækkanir umfram það sem launastefnan á almenna markaðnum kvað á um. Nú er komið að því að menn standi við þau stóru orð. Nú er komið að því að á það reyni hvort menn séu menn sinna eigin orða.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica