Góð tíðindi frá Grundartanga
Góðar fréttir berast nú frá Grundartanga. . Ákveðið hefur verið að fjárfesta fyrir rúmlega 7,3 milljarða í stækkun álvers Norðuráls. Það mun fjölga starfsmönnum fyrirtækisins um 160 auk 30 til 40 viðbótarstarfsmanna við virkjanir sem reisa þarf. Og áform Elkem um stækkun Járnblendiverksmiðjunnar gætu skapað 100 ný störf þar af 50 til 60 við verksmiðjuna sjálfa.
Þetta eru gríðarlega góð tíðindi. Enginn vafi er á því að þessi áform auka bjartsýni og hleypa auknu lífi í atvinnulíf og byggðir norðan Hvalfjarðar.
Mikil áhrif á stærra svæði
Þessar fréttir eru vítamínsprauta inn í samfélögin norðan Hvalfjarðar. Sú þróun hefur orðið að æ stærri hluti þess starfsfólks sem í verksmiðjunum vinnur kemur frá Akranesi, Borgarnesi og frá sveitarfélögunum öðrum í nágrenninu. Æ færri hlutfallslega sækja vinnu frá Reykjavík eða höfuðborgarsvæðinu. Fjölgun starfa í Járnblendiverksmiðjunni og álverinu mun því fyrst og fremst hafa jákvæð áhrif norðan Hvalfjarðar.
Erfitt er að meta þaðnákvæmlega á þessari stundu, en öllum má vera ljóst að margfeldisáhrifin af fjölgun starfa á bilinu 200 til 300 manns í þessum tveimur verksmiðjum verða gríðarlega mikil. Bein áhrif eru einnig vitaskuld mjög veruleg. Við vitum að störfin sem verið er að búa til eru eftirsóknarverð. Önnur þjónusta mun eflast og áhrifasvæði verksmiðjanna, ef þannig má að orði komast mun stækka. Þjónustan verður sótt víðar, það sýnir reynslan. Bein og óbein áhrif verskmiðjunnar verða því víðtækari en áður. Þetta eru því góð tíðindi fyrir stærra svæði en áður.
Góður grundvöllur
Ýmislegat annað vekur jákvæðar vonir til viðbótar þessu. Afkoma beggja fyrirtækjanna er mjög góð.
Járnblendiverksmiðjan átti við ákveðinn vanda að etja. Nú hefur hins vegar heimsmarkaðsverð á afurðum hennar hækkað gríðarlega mikið. Það hefur raunar tvöfaldast frá því í mars 2002. Hagnaður verksmiðjunnar á síðasta ári nam hálfum milljarði króna. Stækkunaráformin nú eru því drifin áfram af raunverulegri hagnaðarvon, sem er vitaskuld þýðingarmesti grundvöllurinn.
Við vitum einnig að heimsmarkaðsverð á áli er hátt. Eftirspurnin í heiminum eykst ár frá ári. Ál er notað í æ fleiri framleiðsluvörur. Hækkun olíuverðs kallar á að samgöngutæki séu sem léttust. Álið gegnir þar lykilhlutverki. Norðurál hefur leyfi til frekari stækkunar og vænta má þess að sú heimild verði nýtt. Er vilji til 8. þúsund tonna viðbótarstækkunar í árslok 2006, þannig að ársframleiðsla verskmiðjunnar nemi 220 þúsund tonnum. Þar með verður Norðurál verulega stærra en álverksmiðjan í Straumsvík. Ársframleiðsla hennar nemur 176 þúsund tonnum.
Næsta stóriðjuuppbygging á Norðvesturlandi
Aðalatriðið er þó þetta.
Þessi tíðindi frá Grundartanga eru jákvæð. Þjóðarbúið fær stærri skerf. Atvinnusköpunin verður meiri. Hagkvæmni fyrirtækjanna eykst. Rekstrargrundvöllur þeirra batnar þess vegna. Við fáum góðan markað fyrir raforkuframleiðslu okkar. Það opnast nýjir og frekari möguleikar til sambærilegrar orkuvinnslu og þar með iðnaðarframleiðslu annars staðar. Þar er eðlilegast og rökréttast að horfa til Norðurlands vestra. Virkjanir og stóriðjuuppbygging þar er með öðrum orðum komin rækilega á dagskrá. Nú er mikilvægt fyrir okkur að fylgja þeim hlutjm duglega eftir.
