Pistlar

Dómstóll götunnar eða réttarfar

4.11.2004

Það ríkir mikil reiði í garð olíufélaganna í kjölfar skýrslu Samkeppnisstofnunar Skýrslan kveður á um meint verðsamráð olíufélaganna og á grundvelli hennar telur Samkeppnisráð að fyrir það beri þau að gjalda milljarða króna.

Þetta er hluti af því regluverki og því fyrirkomulagi sem við höfum sett upp með löggjöf. Því er ætlað að tryggja réttláta málsmeðferð, að menn fari að lögum og að þeir sem bornir eru sökum eigi rétt.

Það er mjög mikilvægt að menn hafi þetta í heiðri. Það er hins vegar ekki gert hjá dómstólum götunnar. Þeir munu hins vegar verða ákaflega vel virkir á næstunni, ef að líkum lætur og taka menn óhikað af lífi. Þetta eru sannarlega velmektardagar þessa dómstigs. En reynslan sýnir að sá dómstóll fer ekki eftir leikreglum en dæmir eitt í dag og annað á morgun. Hjá honum getur skúrkur dagsins í dag orðið hetja morgundagsins - og öfugt.

Öflugar stofnanir

Þegar samkeppnislöggjöfinni var komið á laggirnar fyrir ríflega áratug, voru efld eftirlitstæki samfélagsins á sviði viðskiptalífsins. Samkeppnisstofnun var búin til og fjármunir til hennar hafa verið tvöfaldaðir. Við erum með Kauphöll, Fjármálaeftirlit og umfram allt aðhald markaðarins, eins og við sjáum núna birtast okkur í gríðarlega harðri samkeppni á sviðum þar sem hún var ýmist ekki til eða hvorki fugl né fiskur.

Það er á þessum vettvangi sem mál af því tagi sem kennd eru nú við samráð olíufélaganna eru leidd til lykta.

Dæmin úr fortíðinni

Við þekkjum dæmi úr nýliðinni sögu, þar sem menn voru bornir þungum sökum, þar sem dómstólar götunnar fóru offari, þar sem stjórnmálamenn dagsins hoppuðu á vinsældarvagninn og tóku sér þar far.

Menn voru jafnvel saklausir hnepptir í fangelsi eða sviptir störfum sínum í gerningahríðinni

Nýverið hafa þessir atburðir verið rifjaðir upp og öllum ljóst að þeir sem felldu þyngstu dómana og fóru fremstir í stóryrðunum hafa haft lítinn sóma af. Það væri hollt að minnast þessa núna.

Vegið og metið á jafnréttisgrunni

Ekkert af þessu breytir hins vegar því að eðlilegt er að olíuverðsmálin séu könnuð. Rétt eins og verið er að gera. Þýðingarmikið er að það sé gert á þeim forsendum sem lög gera ráð fyrir og lyktir málsins séu ákvarðaðar af til þess bærum aðilum.

Jafn eðlilegt er að umræða fari fram og menn hafi skoðanir. Það er einfaldlega þáttur í lýðræðislegu nútímasamfélagi. Í slíkri umræðu þarf hins vegar að gæta þess að öll sjónarmið komist til skila. Það er eitt þeirra hlutverka sem fjölmiðlar landsins eiga að sinna.

Við megum aldrei gleyma því að það er engin tilviljun að í fullburða réttarríkjum er andmælaréttur talinn mikils virði. Menn eru saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð. Málatilbúnað Samkeppnisstofnunar og andmæli olíufélaganna verða menn að vega og meta á efnislegum grundvelli og engum öðrum forsendum. Eða dettur einhverjum í hug að í dómsal megi aðeins leggja fram sjónarmið annars málsaðilans. Annað hvort sækjandans eða þá verjandans. Það sjá allir fáránleikann í slíku. Mat Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á hinu meinta verðsamráði ætti að vera jafn fréttnæmt og álit Samkeppnisstofnunar á hinu sama, svo dæmi sé tekið. Þarna reynir meðal annars á styrk fjölmiðlunarinnar í landinu.

Harðari samkeppni á fleiri sviðum

Það er síðan gleðilegt að við sjáum núna skýrari merki um harðari samkeppni og á fleiri sviðum en nokkru sinni áður. Breyttar leikreglur hafa leitt til harðvítugri samkeppni víðar en áður og slíkt hefur bætt kjör almennings. Svið sem áður lutu ríkiseinokun ( s.s fjarskiptaþjónusta) eða voru þrúguð af ríkisfákeppni (bankastarfsemin) lúta nú agavaldi mikillar samkeppni. Umtöluð olíufélög eiga nú sannarlega í harðri samkeppni.

Þessu valda lagabreytingar, sem við höfum knúið áfram vegna þeirrar vissu að samkeppnin en ekki valdboðið leiðir til lægra vöruverðs og betri lífskjara. Ef einhvern lærdóm má draga af olíuverðsmálinu er hann sá að við þurfum að standa dyggan vörð um öfluga samkeppnislöggjöf, sem afstýrir fákeppni á hvaða sviðum sem hún getur birst.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.