Pistlar

Allt svo ofboðslega lýðræðislegt og þannig

24.10.2004

Hafa menn tekið eftir því hvaða orðaleppar - frasar -ganga oftast í gegn um málflutning Samfylkingarinnar.? Svar. Lýðræði og nútímalegur stjórnmálaflokkur. Og rétt eina ferðina var þessum hugtökum brugðið á loft á dögunum til þess að lýsa nýrri stefnumótunartilraun floksins undir merkjum framtíðar og nýrrar sýnar á stjórnmálin. Tillögjum hinnar svo kölluðu Framtíðarnefndar flokksins

Framtíðarnefndin var eins konar aðgöngumiði Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur að stjórnmálaumræðunni. Hún hefur nú skilað af sér einhverjum afrakstri. Og hver er árangurinn. Hafi menn átt í erfiðleikum með að skilja stjórnmálahugmyndir þess flokks áður, eru þær nú orðnar algjörlega óskiljanlegar núna. Og til þess að breiða yfir vandræðaganginn er gömlu orðaleppunum enn einu sinni brugðið á loft. Allt er svo ofboðslega lýðræðislegt og allt er svo ofboðslega nútímalegt. Mótsagnirnar eru taldar til marks um lýðræðislega umræðu og vandræðagangurinn kenndur við framtíðarsýn!

Atrhyglisvert útspil í heilbrigðisumræðu

Össur Skarphéðinsson formaður Samfylkingarinnar sýndi þann kjark að brjótast út úr múrum staðnaðrar hugmyndafræði flokks síns í velferðarmálunum er hann talaði á síðasta landsfundi fyrir auknum launsum einkarekstrar í heilbrigðismálum. Tók hann þannig undir málflutning okkar sjálfstæðismanna, sem Ásta Möller íhefur haft mikla og góða forystu um. Eitthvað gengur þó flokkssystkinum Össurar illa að skilja breytta tíma. Þar á bæ tala menn enn í gömlu frösunum.

Ósköp venjuleg RUGLANDI

Nema hvað. Sýnilega var ætlunin að láta hér staðar numið. Össur áréttaði andstöðu flokksins við einkarekstrarlausnir í skólamálum í ræðu á dögunum. Sama gerði einhver angi Framtíðarnefndar Samfylkingarinnar í skjali sínu En í öðru skjali sömu nefndar kvað hins vegar við annan tón. Þar var kallað eftir öðrum lausnum; einkarekstrarlausnum í skólamálum, gjörólíkum þeim sem Samfylkingin hefur talað fyrir. Voru jafnvel tekin dæmi af mikilli velvild af þeim málum sem Samfylkingin hefur hamast gegn af hvað mestum vígamóð.

Fyrir vikið hfa forystumenn Samfylkingarinnar nú mátt hafa sig alla við að útskýra, hvað sé hin rétta lína, hvað séu sundurlausir þankar; hver sé stefnan og hvað sé síðan ætlunin að verði skotið niður úr umræðunni þegar hún hefst undir merkjum lýðræðisins!! nÞví það mega þeir eiga í Samfylkingunni. Þeir hafa gefið til kynna að eitthvað megi nú á flot setjá, í svona umræðu, en jafn ljóst að engar hugmyndir nái landi, nema njóta velþóknunar þeirra sem ráða! Lifi lýðræðið.

Vandséð er hvað slíkum vinnubrögð kallast í mæltu máli. En hér er hugmynd. Leita má í smiðju Þórbergs Þórðarsonar. Þessi stílleikfimi er nefnilega kristaltær RUGLANDI !

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica