Pistlar

Mennt er lítill máttur

24.9.2004

Álitsgerð Hæstaréttar um umsækjendur um embætti hæstaréttardómara hefur vakið mikil viðbrögð. Víða telja menn að hún kalli á endurskoðun á því fyrirkomulagi sem ríkir varðandi ráðningu hæstaréttardómara.

Athygli vekur líka hversu umsögnin nú er í hróplegri andstöðu við skoðun Hæstaréttar þegar nýr dómari var síðast ráðinn til réttarins. En mesta furðu vekja þó einstök efnistök Hæstaréttar í umsögn sinni.

Sjónarmið af Múrnum

Ástæað er til þess að vekja athygli á skrifum á vefritinu Múrinn, sem Vinstri grænir standa að. Þar segir meðal annars:

"Þær umræður sem hafa skapast í kjölfar umsagna Hæstaréttar verða vonandi til þess að ferlið varðandi skipun hæstaréttardómara verður tekið til endurskoðunar. Það er hættulegt ef Hæstiréttur fer að gera tilkall til þess að hafa eitthvert úrslitavald þegar kemur að skipun dómara. Dómararnir gætu þá skipað sín eigin skoðanasystkin og það er engum vinnustað gott að hafa aðeins eitt sjónarmið ráðandi. Hæstaréttardómarar eru æviráðnir og það þarf engan stóran spekúlant til þess að sjá hversu alvarlegar afleiðingar það getur haft ef þessi miklu völd tilheyra einsleitum hópi, hversu hæfir sem dómararnir eru.

Hins vegar er nú kjörið tækifæri til þess að skoða vel hvort það sé besta leiðin að ráðherra skipi hæstaréttardómara. Þrátt fyrir að ráðherra ætti að hafa aðhald lýðræðisins er hann aðeins einn einstaklingur og því meiri hætta á að skipun dómarans taki mið af öðru en lögum og reglum. "

Prófgráður skipta engu máli!!

Furðu vekur umfjöllun Hæstaréttar um nám umsækjenda. Þar segir svo:

"Nokkur munur er að öðru leyti á námsárangri umsækjendanna og stendur Eiríkur þeirra fremstur með mjög háa einkunn á embættisprófi. Þrjú af umsækjendunum, Eiríkur, Hjördís og Stefán Már, hafa lagt stund á framhaldsnám að loknu embættisprófi. Hjördís hefur ein lokið slíku námi með æðri menntagráðu. Í heild má þó leggja þessa þrjá umsækjendur að jöfnu að því er nám varðar og standa þau að því leyti öðrum umsækjendum framar."

Þetta er athyglisvert. Í fyrsta lagi vegna þess að einungis einn úr hópnum skuli hafa lokið framhaldsmenntun og hvorugur prófessoranna við Háskólann. En ennþá frekar hitt að sjálfur Hæstiréttur leggur bersýnilega nákvæmlega ekkert upp úr því hvort menn hafi lokið prófum. Þetta er furðulegt. Hvers konar skilaboð eru þetta til íslensks æskulýðs. Skipta prófgráðurnar virkilega engu máli í þessu samhengi?

Tökum dæmi af mönnum sem fara til náms. Annar lýkur námi, hinn ekki. Ber þá - samkvæmt skilgreiningum Hæstaréttar - að leggja þá að jöfnu? Svo ber að skilja af orðum Hæstaréttar.

Reynslan gildir - en bara stundum

Sambærilega umfjöllun getur að líta um málflutnginsreynslu umsækjenda. Hún var talin miklu máli skipta fyrr á árinu og ætti því að vega þungt í heildarmatinu. Um það segir þó Hæstiréttur nú:

"Af þessu er ljóst að Eiríkur (Tómasson) og Jón Steinar ( Gunnlaugsson) hafa báðir verulega reynslu af lögmannsstörfum og standa að því leyti öðrum umsækjendum framar, en ekki eru efni til að gera upp á milli þeirra innbyrðis þótt munur sé á þeim heildartíma, sem þeir hafa sinnt þessum störfum."

Af hverju skiptir það ekki máli að munur sé á þeim heildartíma sem lögmennirnir hafa sinnt málflutningsstörfum. Sé þessi kvarði á annað borð notaður til þess að vega menn og meta, þá hlýtur það einmitt að skipta höfuðmáli hver málflutningsreynslan er. Hún er af Hæstarétti notuð til þess að greina að þá Jón Steinar og Eirík frá öðrum umsækjendum. En hvers vegna má þá ekki nota mismunandi reynslu þeirra tveggja til þess að greina þá að. Þar er þó augljóst að Jón Steinar hefur meiri reynslu en Eiríkur á þessu sviði. Það blasir líka við að starfsreynsla á öðrum sviðum, svo sem við dómarastörf, lagakennslu og fleira er notuð sem mælikvarði þegar hæfnin er metin að öðru leyti. Hér er Hæstiréttur mótsagnakenndur í meira lagi, svo ekki sé nú fleira um þetta sagt.

Má gagnrýna álit Hæstaréttar?

Svona mótsagnakennt álit rýrir mjög gildi þess og setur Hæstarétt og sjálfa aðerðina við val á hæstaréttardómurum í nýtt ljós. Stundum er brugðist illa við þegar Hæstiréttur er gagnrýndur. Hann verður þó að þola slíkt og þær spurningar sem álit hans vekur hjá oss ólöglærðum leikmönnum eru svo áleitnar að þær eiga erindi inn í hina opinberu umræðu.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica