Pistlar

Ástir hinna ósamlyndu hjóna

14.8.2004

Það er mikill misskilningur að stjórnarandstaðan sé að ná betur saman á málefnalegum forsendum en áður. Stjórnarandstaðan er jafn út og suður og áður og innbyrðis ósammála. Það blasir við hverjum manni. Hins vegar kusu foringjar stjórnarandstöðunnar að láta slíkt lönd og leið um tíma á vordögum og í sumar. Þeir ýttu málefnalegum ágreiningi til hliðar - hirtu ekkert um málefnaáherslur í þeirri von að höggi mætti ná á ríkisstjórnina í fjölmiðlamálinu. Það tókst ekki og eftir þá sneypuför húka stjórnarandstæðingar nú aftur hver í sínu horni.

Horfinn er ástarbríminn

Það blastir til dæmis við að stjórnarandstaðan var ósammála í þessu fræga fjölmiðlamáli. Það má glögglega sjá ef farið er yfir umræður, einkanlega fyrstu umræðu málsins. Vinstri grænir hrópuðu á lög gegn eignarhaldi og Frjálslyndir töltu á eftir. Samfylkingin hefur á hinn bóginn verið að forherðast í andstöðu sinni við slíkt. Þarna er grundvallarágreiningur á ferðinni, rétt eins og í fleiri stórmálum á borð við Evrópusambandsaðildina, sem nú hefur dálitið verið rædd á ný.

Hafi menn séð kærleiksmerki á milli stjórnarandstöðuflokkanna helguðust þau bara af því að vonarglampi kviknaði í augum stjórnarandstöðuleiðtoganna um ríkisstjórnarsæti. Nú hefur sá vonarglampi slökknað og ástarbríminn horfið. Flóknara er það mál nú ekki.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica