Pistlar

Rabbþættir í stað stjórnarandstöðu

25.1.2004

Athyglisvert er að pólitík stjórnarandstöðunnar einkennist fremur af þátttöku í umræðum um dægurmálin, en klárri stefnumörkun. Þess vegna er stjórnarandstaða dagsins ekki skýr valkostur. Með dálítlilli einföldun má segja að stjórnarandstaðan sé eins konar framhald af Kastljósi, Íslandi í dag, eða dægurmálaþáttum útvarpsstöðvanna.

Sennilega er þetta einhver einfaldasta aðferð einnar stjórnarandstöðu, en rismikið getur þetta tæpast talist. Fyrir þá sem leita að valkostum í íslenskum stjórnmálum er þessi staðreynd óskaplega dapurleg.

Horfnir eru hinir skörpu drættir

Á fundum sem ég hef setið í kjördæminu nú í þinghléinu hef ég fært þessi mál í tal. Rifjað upp deilur sem hafa orðið í þinginu um stórmál á borð við EES eða stóriðjuna. Þar voru dregnar meginlínur í stórum málum.

Nú eru þessu öðruvísi farið. Horfnir eru hinir skörpu drættir. Stjórnarandstaðan er fyrst og fremst í því að færa inn á vettvang Alþingis mál sem þegar ber hæst í þjóðmálaumræðunni. Nú þegar þingið kemur saman um miðja vikuna má gera ráð fyrir því að umræður verði hafnar um þau mál sem hæst hafa borið í fjölmiðlunum. SPRON málin, heilbrigðismálin og fleira af því tagi.

Af sem áður var

Það er furðulegt. En hálfvegis saknar maður genginna daga þegar tekist var á um stór mál og grundvallarhugmyndir. En þá er þess að minnast að fyrir löngu er lokið þeim átökum sem forðum áttu sér stað. Má þar nefna deiluna um varnarsamstarfið og ágreining um markaðsbúskap og samkeppni. Vinstri menn máttu lúta í gras í báðum þessum málum. Sáralítill ágreiningur er lengur meðal þjóðarinnar um öryggis og varnarmál. Yfirgnæfandi stuðningur er við stöðu okkar í vestrænu varnarsamstarfi. Og sagan dæmdi hina sósíalísku hugmyndafræði dauða og ómerka. Þeir sem fyrrum stóðu á torgum og kröfðust ríkisafskipta í stað frjálsra viðskipta setja nú skyndilega traust sitt á markaðinn.

Hirt upp úr þjóðfélagsumræðunni

Fyrir vinstri sinnaða stjórnarandstöðu veldur svona staða óskaplegaum vandræðum. Þess vegna er þingmönnum stjórnarandstöðunnar nokkur vorkunn. Það er erfitt að að hafa frumkvæði að öflugri pólitískri stefnumótun. Og þá er kannski bara einfaldast að hirða upp úr þjóðfélagsumræðunni mál sem passa inn í hnitmiðaðar setningar og geta ratað inn í fréttayfirlitið að kveldi að loknu argaþrasi þingsins.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica