Pistlar

Háskólakjördæmið með stórum staf og greini

31.10.2003

Hvert er helsta háskólakjördæmið á Íslandi? Svarið við þessari spurningu liggur ef til vill ekki í augum uppi. Við nánari athugun er það þó augljóst. Norðvesturkjördæmið er er í rauninni Háskólakjördæmið með stórum staf og greini. Innan þess starfa núna þrír háskólar, auk þess sem háskólauppbygging er á fullri ferð á fjórða staðnum.

Þetta er enn eitt dæmið um þá grósku sem er í menntamálum í landinu. Og enn eitt dæmið um þær umbreytingar sem eru að verða í landinu, ekki síst á landsbyggðinni.

Þrír háskólar og fleira á leiðinni

Fyrir fáeinum árum hefðu menn ekki verið í vandræðum með að lýsa höfuðdráttum kjördæmisins. Í þeirri lýsingu hefði örugglega ekki verið pláss fyrir háskólasamfélagið, enda ekkert tilefni til. Nú er hins vegar öldin önnur.

Á Bifröst er Viðskiptaháskólinn, á Hvanneyri er landbúnaðarháskóli og á þessu ári fékk Hólaskóli sömu nafnbót. Á Ísafirði er nú unnið markvisst og hörðum höndum að uppbyggingu háskólanáms auk þess sem þar hefur orðið hrein sprenging í fjarnámi á háskólastigi.

Hlekkir vanans brotnir niður

Háskólarnir þrír eru gott dæmi um það hvernig áræði og athafnasemi hefur brotið af sér hlekki vanans og eflt skóla sem störfuðu á gömlum grunni til nýrra átaka. Við vitum vel að Bifröst væri ekki það sem hún er í dag, ef gamla samvinnuskólahugmyndafræðin væri þar enn í fyrirrúmi; þó svo að sú skólastarfsemi sem rekin var undir þeim merkjum hafi verið góð og gild á sínum tíma. Sömu sögu er að segja um skólana á Hólum og á Hvanneyri. Þeir eiga að sönnu rætur í gömlu bændaskólunum. En námsefnið og öll uppbygging er allt önnur en sú sem bændaskjólarnir gömlu byggðu á. Þeir skírskota nú til margfalt víðara sviðs en eingöngu landbúnaðar; jafnvel þó men teygi það hugtak yfir miklu víðara svið núorðið en fyrr meir var gert.

Með örðum orðum: Þessir skólar gerðu gott betur en að svara kalli tímans. Þeir höfðu í rauninni áhrif á þróunina, mótuðu hana og leiddu.

Háskólanám styrkir atvinnulífið

Uppbygging háskólanáms á Vestfjörðum lofar góðu. Sú sprenging sem hefur orðið í námsþátttöku fjarnámsnemenda er vísbending um það. Nú virðist sem að það sé að festast í sessi að jafnaði stundi yfir eitt hundrað nemendur nám á háskólastigi á Vestfjörðum. Hver hefði trúað því fyrir fimm árum síðan? Þessir nemendur eiga eftir að skila sér út í atvinnulífið með miklum krafti á næstu árum.

Við höfum þegar reynsluna. Fjarnámið í Kennaraháskólanum gjörbreytti stöðunni í fjölda skóla á Vestfjörðum með tilliti til hlutfalls réttindakennara. Útskrift hjúkrunarfræinganna á Ísafirði, sem stunduðu nám við hjúkrunardeild Háskólans á Akureyri með fjarnámsssniði, efldi vitaskuld heilbrigðisþjónustuna á svæðinu, svo dæmi séu tekin.

Augljóslega mun hið sama gera þegar fólkið í rekstrarfræðinnni og öðrum námsgreinum lýkur námi sínu nú á næstu árum. Og nú þarf sem fyrst að ljúka því sem unnið hefur verið að; uppbyggingu háskólanáms sem kennt verður frá Ísafirði.

Risaskref stigin undir forystu Sjálfstæðisflokksins

Allt er þetta vísbending um það sem koma skal. Við erum að festa okkur í sessi sem öflugt háskólasvæði. Þetta er breyting og þetta er framför. Undir forystu Sjálfstæðisflokksins hafa verið stigin risaskref í menntamálum í landinu í heild. Það er ómótmælanlegt og hagtölur sýna það. Erlendar stofnanir sem senda fulltrúa sína hingað til lands veita þessu og athygli, sem vonlegt er.

Það er einkar ánægjulegt að kjördæmið okkar, Norðvesturkjördæmið, skuli fá sinn réttmæta og nauðsynlega sess á þessu sviði. Það veitir ekki af. og það skiptir miklu máli. Það er enn óræka sönnunin þess, að unnt er, - ef vilji, skilningur og sanngjarnir fjármunir eru fyrir heni, - að byggja upp fjölbreytta þjónustu og atvinnulíf á landsbyggðinni.

Og því segjum við eins og forðum: - Áfram með smérið!

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.