Pistlar

Athyglisverð ummæli -Kvittað fyrir umræðu um fyrningarleið

28.5.2003

Umræðan um stefnuræðu forsætisráðherra var ekki mjög tilþrifamikil af hálfu stjórnarandstöðunnar. Það var eins og menn væru hálf móðir eftir kosningabaráttuna og svekktir, amk sumir, yfir því að hefja enn eina gönguna utan ríkisstjórnar.

Athygli mína í þessar umræðu vöktu þó ummmæli Magnúsar Þórs Hafsteinssonar varaformanns Frjálslynda flokksins sem talaði harkalega gegn hugmyndum sem reifuð eru í s jórnarsáttmálanum um aukna veiðiskyldu. Leiguviðskipti með kvóta, vegna þess að handhafar veiðiréttarins þurfa ekki að nýta hann nema að hálfu á ári hverju, hafa orðið mikið bitbein. Ef það er eitthvað eitt sem upp úr fólki stendur í gagnrýni á kvótakerfi og frjálst framsal þá er það einmitt það að menn geti gert sér það að féþúfu að leigja frá sér veiðiréttinn.

Að auka eða auka ekki veiðiskylduna

Sjómannasamtökin hafa verið lang samlega fyrirferðamest í þessari gagnrýni. Nú hefur LÍÚ fallist á það með sjómönnum að auka beri veiðiskylduna, svo leiguviðskipti með kvóta ( það sem Frjálsyndir og fleiri kalla kvótabrask) verði minna.

Þessi mál bar oft á góma í kosningabaráttunni. Þannig kom til dálítilla orðaskipta á millum okkar Guðjóns A. Kristjánssonar formanns Frjálynda flokksins vegna þessa máls á sameiginlegum framboðsfundi á Hólmavík. Bar ég það upp á hann að hafa ekki treyst sér til þess að standa með félögum sínum úr sjómannahreyfingunni, þegar þeir settu fram kröfu um aukna veiðiskyldu, í samkomulagi við LÍÚ. Hafði ég þá í huga neikvæð viðbrögð hans við þessum tillögum þegar þær komu fram fyrir fáeinum misserum. Þessum ásökunum neitaði Guðjón og varð ekki skilinn öðruvísi en svo að hann vildi að nýju auka veiðiskylduna, eins og hann var alltaf talsmaður fyrir þegar hann var forseti Farmanna og Fiskimannasambandsins, þó svo að hann hafi talað með öðrum hætti síðar. Af viðbrögðum hans á fundinum á Hólmavík ætlaði ég því að hann væri að nýju kominn upp að hlið félaga sinna í sjómannahreyfingunni.

Varaformaður og formaður Frjálynda flokksins eru ósammála

Þess vegna kom útspil varaformanns Frjálynda flokksins mér mikið á óvart. Skoðun hans var greinilega sú að neikvæðir fylgifiskar aukinnar veiðiskyldu væru svo miklir að ekki bæri að fara þá leið. Ýmislegt er svo sem til í því að hugmyndir um aukna veiðiskuyldu og minna framsal eru umdeilanlegar. Aukin veiðiskylda hefur klárlega annmarka í för með sér. Það er ljóst og því sjálfsagt að ræða þau mál. En upplýst er nú að formaður og varaformaður Frjálslynda flokksins eru ósammála um þetta veigamikla efnisatriði og verða það að teljast all nokkur tíðindi.

Kvittað fyrir fyrningarleiðina

Að öðru leyti var umfjöllun um sjávarútvegsmál ekki mjög fyrirferðamikil í umræðunni. Helst voru það undirritaður og þingmenn Frjályndra sem gerðu þeim málum umtalsverð skil í ræðunum. Í ræðu minni kvittaði ég meðal annars fyrir umræðurnar úr kosningabaráttunni um fyrrningarleiðina með eftirfarandi hætti:

"Það er til dæmis alveg ljóst að umræðurnar um fyrningarleið í sjávarútvegi sýndu ljóslega fram á hinar stórkostlegu veilur sem eru í málflutningi stjórnarandstöðuflokkanna í þessu máli. Þegar umræðan fór að skila sér til almennings í landinu brugðu jafnvel helstu talsmenn þessarar kenningar á það ráð að draga í land, vegna þess að þeir gátu ekki lengur neitað því að stefnumörkun þeirra gæti ekki annað en haft neikvæðar afleiðingar í för með sér. Þegar þeir sem ætluðu að fyrna veiðiréttinn á 10 árum ákváðu skyndilega að þessi fyrningartími gæti allt eins verið 20 ár eða 25 ár eða jafnvel eitthvað ennþá lengra, voru þeir að viðurkenna, sem öllum öðrum hafði verið fyrir löngu ljóst, að fyrningarleiðin myndi hafa stóralvarlegar afleiðingar í för með sér, fyrir byggðirnar og starfandi útgerðir; ekki síst einstaklingsútgerðirnar og helst af öllu nýliðana. Þetta viðurkenna talsmenn fyrningarleiðar í raun. Enda má ekki gleyma því að fyriringarleið Samfylkingarinnar gerir ráð fyrir byggðakvótaúthlutun í gegn um Byggðastofnun, af því að allir vita að fyrningarleið getur haft svo alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir byggðirnar"

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.