Pistlar

Víst sagði hún Ingibjörg Sólrún þetta

5.5.2003

Til umræðu kom á sameiginlegum stjórnmálafundi á Ísafirði að Ingibjörg Sólrún hefði haft orð á því að Reykvíkingar ættu að fá næsta samgönguráðherra. Samfylkingarmenn drógu í efa að rétt væri frá þessu greint. Þeir hafa hins vegar á röngu að standa. Orð hennar eru til skjalfest. Í Ríkisútvarpinu var þann 20. mars vitnað til orða hennar úr viðtali við Útvarp Norðurland frá deginum áður. Þar koma þessi orð hennar fram:

"Það má út af fyrir sig segja að það sé komin röðin að því ef við erum að tala um þetta á einhverjum kjördæmagrunni, að höfuðborgin, þingmaður frá höfuðborgarsvæðinu verði samgönguráðherra. Það hefur aldrei verið, aldrei gerst"

Þetta er skýrt og þarf ekki frekari vitnanna við.

Ofur skiljanlegt

Út af fyrir sig þarf ekkert að koma á óvart í þessu sambandi. Skemmst er þess að minnast hvernig hver samfylkingarmaðurinn(konur og karlar) af öðrum rauk upp í ólund yfir því að hlutur landsbyggðarinnar í vegaframkvæmdum á landsbyggðinni væri mikill - hlutur höfuðborgarsvæðisins hins vegar svo smár. Dæmi um slík ummæli eru óteljandi og engin ástæða til þess að tilgreina þau hér og nú.

Þetta ber að skoða í ljósi þeirra miklu þarfa sem eru á hröðum vegabótum á landsbyggðinni svo víða og eru Vestfirðir gott dæmi um það. Vilji Ingibjargar Sólrúnar til þess að samgönguráðherra verði í framtíðinni ekki af landsbyggðinni, stafar örugglega ekki af því að slíkt verði til þess að efla vegagerð á landsbyggðinni. Öðru nær, eins og allir vita og skilja.

En vel má skilja þessi orð í ljósi annarra fleygra ummæla sem féllu um áramót og hlutverks hennar í stjórnmálum að þröngri hagsmunagæslu fyrir sveitarfélag sitt.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.