Styrk forysta- glæsilegt kjör kvenna
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var afar glæsilegur. Hann undirstrikaði meðal annars tvennt. Mjög góða málefnastöðu Sjálfstæðisflokksins og mikla eindrægni flokksmanna. Forysta Sjálfstæðisflokksins fer frá þessum landsfundi með endurnýjað afdráttarlaust umboð, eftir sérlega glæsilega kosningu. Endurkjör þeirra Davíðs Oddssonar formanns Sjálfstæðisflokksins og Geirs H. Haarde varaformanns sýnir, svo ekki verður um villst, að þeir njóta óskoraðs trausts á meðal flokksmanna. Það er því óhætt að segja að forysta Sjálfstæðisflokksins sé öflug og að baki henni sé einörð sveit öflugra einstaklinga.
Í miðstjórnarkjörinu bar það sérstaklega til tíðinda að konur voru í fyrsta sinn í meirihluta kjörinna fulltrúa. Birna Lárusdóttir forseti bæjarsstjórnar Ísafjarðar hlaut lang flest atkvæði í miðstjórnarkjörinu. Raunar fékk hún líka flest atkvæði á síðasta Landsfundi og hefur sýnt þar með að staða hennar er sterk og hún nýtur mikils trausts fólks í Sjálfstæðisflokknum um allt land. Önnur kona úr okkar kjördæmi, Elínbjörg Magnúsdóttir verkalýðsleiðtogi á Akranbesi lenti í þriðja sæti, þannig að óhætt er að segja að þessar tvær hæfu konur hafi fengið verðskuldað traust landsfundarfulltrúa. Er þeim báðum óskað til hamingju með þetta glæsilega kjör.
Brotið í blað með sjávarútvegssamþykkt
Frá þessum fundi göngum við líka málefnalega sterk. Við tókumst á við fjölmarga málaflokka. Umræður voru oft miklar. Einkum í nefndunum. Sá sem hér stýrir penna var formaður Stjórnmálanefndar Landsfundarins sem vann að gerð Stjórnmálaályktunar. Það var athyglisvert hversu menn voru vel samstíga við mótun þeirrar ályktunar og sýnir þann málefnalega styrkleika og þá eindrægni sem ríkir í flokknum.
Einna mesta athygli hlýtur að vekja ályktunin um sjávarútvegsmálin. Þar var vissulega brotið í blað. Fjölmörg önnur atriði má líka nefna og er ástæða til að vekja athygli á efnisatriðum landsfundarins sem rakin eru á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins www. xd.is
