Pistlar

Aðalatriðið er að hefja framkvæmdir.

6.2.2003

Úrskurður setts umhverfisráðherra Jóns Kristjánssonar markar þáttaskil í umræðunni um áframhaldandi uppbyggingu stóriðju á Grundartanga. Úrskurðurinn kom vissulega á óvart. Fyrir lá að Skipulagsstofnun gerði ekki athugasemdir við tillögu Landsvirkjunar um upphaflegt lónsstæði. Því hefði mátt vænta að ráðherra staðfesti þann úrskurð. Famkvæmdir hefðu að því búnu getað farið tafarlaust í gang sem hefði verið afar mikilvægt.

Nú liggur fyrir úrskurður ráðherrans. Þar er mjög komið til móts við þá sem gagnrýndu virkjun við Norðlingaöldu á umhverfislegum forsendum. Þeir sem enn reyna að móast við á þeim forsendum, gera það af óbilgirni og til móts við þá verður einfaldlega ekki gengið. Sjónarmið þeirra eru einfaldlega þannig að þau eru ósamrýmanleg nýtingarstefnu þeirri sem framfarasinnað fólk aðhyllist á sviði orkumála.

Orku til Norðuráls

Því er ekki að neita að úrskurður ráðherra nú hefur valdið óvissu - en þó væntanlega bara stundaróvissu - um hvenær hægt verði að hefja framkvæmdir við virkjun á þessu svæði. Mikilvægt er hins vegar að það verði gert sem allra fyrst. Markmiðið á að vera að hægt sé að útvega orku til Norðuráls á þeim tíma sem talað hefur verið um. Frekari seinkun á því er ólíðandi.

Norðurál er mikilvægur og vinsæll vinnustaður. Fyrirtækið hefur lagt ótalda milljarða í buddu þjóðarinnar og átt sinn þátt í þeirri útflutningsaukningu sem við höfum notið undanfarin ár. Frekari stækkun er forsenda meiri hagkvæmni og atvinnusköpunar sem við þurfum svo sannarlega á að halda nú.

Þess vegna er full ástæða til þess að taka undir samþykkt aðalfundar Verkalýðsfélags Akraness frá 1. febrúar sl. sem skorar á stjórnvöld að standa við gerða samninga við Norðurál, og tryggja að Norðurál fái þá orku sem fyrirtækið þarf, til þess að geta hafið stækkun sem fyrst.

Markmiðið var að útvega orku

Markmiðið með virkjunum á þessu svæði var að útvega orku til stækkunarinnar hjá Norðuráli. Ekkert hefur breyst í þeim efnum. Þess vegna er algjörlega óviðunandi annað en að það verði tryggt og á þeim tíma sem um hefur verið rætt frá upphafi. Ekki degi síðar.

Fyrir þessu eru líka önnur augljós efnahagsleg rök. Núna er slaki í hagkerfinu. Hagfræðingar hafa bent á að auknar fjárfestingar í nauðsynlegum framkvæmdum einmitt núna séu skjótvirkasta leiðin til að minnka þennan sllaka og búa til ný störf. Það liggur fyrir að orkuframkvæmdir við Norðlingaöldu og stækkun Norðuráls eru gríðarlega hagkvæmar framkvæmdir. Og jafnvel þó að búið sé að draga úr arðsemi virkjunarinnar með úrskurði ráðherra er allt sem bendir til að hún verði enn langsamlega hagkvæmasti virkjunarkosturinn sem eigum völ á.

Þess vegna er afar brýnt að ljóst sé að ekki muni standa á orkuöfluninni, svo að hið mikilvæga fyrirtæki Norðurál, geti tafarlaust hafist handa við nauðsynlegan undirbúning og framkvæmdir þannig að engar tafir verði á stækkun verksmiðjunnar á Grundartanga.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica