Pistlar
Lokaspretturinn er að hefjast
Alþingi kemur saman eftir jólahlé á morgun. Þingið verður óvenju stutt að þessu sinni vegna nálægðar kosninganna. Það má ráð fyrir miklum en hefðbundnum pólitískum flugeldasýningum stjórnarandstöðunnar á þessum vikum sem fara í hönd, enda kosningarnar svo nærri.
Miðað við umræðu síðustu vikna er við því að búast að Kárahnjúkavirkjunin og álverið í Reyðarfirði verði mjög til umræðu og varla kemur stærra mál fyrir þingið að þessu sinni. Línur eru að skýrast. Þjóðin er að eflast í stuðningi sínum við málið og ótrúlega breið samstaða er að skapast um það á Alþingi. Samfylkingin er nánast öll að koma til fylgis við það. Stjórnarflokkarnir eru órofa í stuðningi sínum. Það er því ljóst að mikill þingmeirihluti verður að baki málinu. Vinstri Grænir eru auðvitað á móti; en hverju eru þeir svo sem ekki á móti.
Hroki
Furðurlegt er það hins vegar hvernig sumir andstæðingar málsins bregðast við. Þrátt fyrir að stuðningur almennings við málið sé augljóslega afgerandi leyfa menn sér að tala þannig að þjóðarviljinn sé andsnúinn virkjuninni og álverinu. Þetta lýsir dæmalausum hroka og fyrirlitningu á skoðunum meirihluta fólks.
Í Silfri Egils í gærkom svo heimspekidósentinn Sigríður Þorgeirsdóttir og reyndi að ljúga því að þjóðinni að Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki að fram færi upplýst umræða um þessi álitaefni. Þetta er ótrúlegur málflutningur, sem á ekkert skylt við heimspekilega rökhugsun, eða rökgreiningu hugtaka, sem heimspekingar öðrum fremur hafa vald á. Við sjálfstæðismenn höfum óragir tekið þátt í umræðunni, fagnað henni og síður en svo latt að hún ætti sér stað. Við fögnum umræðunni og hvetjum til hennar. Sjálfur hef ég hvað eftir annað fjallað um þessi mál í ræðu jafnt og riti; nú síðast með grein í Morgunblaðinu fyrir nákvæmlega viku síðan og lesa má hér á heimasíðu minni
Að baki ákvörðuninni um Kárahnjúkavirkjun og samningunum við Alcoa liggur þrotlaus og áralöng vinna vísindamanna á fjölþættu fræðasviði. Hagfræðingar hafa farið ofan í hinar hagrænu forsendur og um þetta allt hafa síðan farið fram miklar efnislegar umræður. Hvernig Sigríður getur síðan haldið því fram að við stöndum gegn upplýstri umræðu er þess vegna óskiljanlegt.
