Pistlar

Sjúkrahússorp á undanþágu

6.1.2003

Svo undarlegt sem það nú er, þá er mest öllu sjúkrahússorpi í landinu eytt þannig að það uppfyllir ekki kröfur opinberra aðila. Þetta er þeim mun undarlegra í ljósi þess að hér er augljóslega um viðkvæma hluti að ræða. Á sama tíma og þetta gerist liggur fyrir að Funi, sorpeyðingarstöðin á Ísafirði, getur vel bætt við sig verkefnum, hefur öll leyfi sem til þarf og uppfyllir að fullu kröfur yfirvalda til slíkrar förgunar.

Undirritaður hefur reynt að vekja athygli á þessu ástandi, sem degið var fram í dagsljósið í svari umhverfisráðherra við fyrirspurn minni á Alþingi nú fyrr í haust. Svarið vakti mikla athygli og umræður á opinberum vettvangi. En það er ekki nóg. Við hljótum að ætlast til þess, að úr því að til staðar er fullgilt úrræði til förgunar sjúkrahússorpsins, þá sé það nýtt og undanþáguaðferðirnar verði lagðar niður þegar í stað.

Líkamsleifar, lyfjaúrgangur og frumubreytandi efni

Með hugtakinu sjúkrahússorpi er átt við sérstakan úrgang frá heilbrigðisstofnunum sem hefur í för með sér meiri sýkingarhættu og hættu á meiðslum en annar úrgangur. Til þessa flokks heyrir sóttmengaður úrgangur, líkamsleifar, hvassir hlutir, lyfjaúrgangur og frumubreytandi efni sem geta haft stökkbreytingar í för með sér.

Samkvæmt því sem fram kemur í svari umhverfisráðherra við fyrirspurn minni má ætla að slíkur úrgangur sé um 350 tonn á ári. Að lang mestu leyti fer eyðingin á þessu fram hjá Sorpbrennslu Suðurnesja, í gamalli og ófullnægjandi sorpbrennslu. Tók hún á móti 280 tonnum af sjúkrahússorpi árið 2001.

Ríkið veitir sjálfu sér undanþágur

Nú er verið að fjalla um skyld mál á Alþingi, í tengslum við nýtt frumvarp um meðhöndlun úrgangs. Er að því stefnt að málum þessum verði skipað í betri og tryggari farveg að samþykktum nýjum lögum. Eðlilegt er hins vegar að beina þegar í stað allri förgun sjúkrahússúrgangsins frá gömlum undanþágusorpsstöðvum inn í stöðvar sem hafa til þess öll leyfi. Engin ástæða er til þess að tefja frekar í þeim efnum.

Yfirvöld knýja nú mjög á um að sveitarfélög komi sorpmálum sínum í gott lag þrátt fyrir að af því stafi gríðarlegur kostnaður. Á meðan er það einfaldlega ekki viðundandi að ríkisvaldið, sem rekur heilbrigðisstofnanirnar í landinu, láti farga sjúkrahúsúrgangi við aðstæður sem ekki uppfylla skilyrði og reglur sem hið sama ríkisvald setur. Það sjá allir að slíkt háttalag gengur einfaldlega ekki.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica