Alltaf eru þeir samir við sig
Fjárlagaumræðan hefur gengið fyrir sig með hefðbundnum hætti. Við aðra umræðu hennar birtast flestar breytingartillögur meirihluta fjárlaganefndar. Þær útgjaldafrekustu lúta að stórum ákvörðunum, sem flestar eiga upphaf sitt við ríkisstjórnarborðið. Margar þær minni, sem vekja þó hvað mesta fjölmiðlaathyglina, eru afrakstur samtala nefndarinnar við fjölda fólks um allt land, sem kemur til fundar við fjárlaganefndina, eins og árvisst er og afar eðlilegt.
Blessuð stjórnarandstaðan hefur verið með hefðbundna sýndarmennsku við þessa fjárlagaumræðu, líkt og endranær. Í ræðunum sínum og útvarpsþáttunum gagnrýna þeir ríkisstjórnarflokkana fyrir að vera of útbæra á almannafé. Sjálfir leggja þeir hvergi til aðhald. Þess í stað lögðu Vinstri Grænir og Samfylkingin hvor um sig fram útgjaldatillögur upp á milljarða króna.
Svona málflutning er ekki hægt að taka alvarlega. En engan skal samt undra. Svona er stjórnarandstaðan okkar blessuð; alltaf söm við sig. - Þar rekur sig hvað á annars horn/ eins og hendir graðpening vorn, líkt og eitt sinn var ort.
Menningaruppbygging til atvinnusköpunar
Það vekur athygli mína að reynt er að gera einstakar tillögur meirihluta fjárlaganefndar tortryggilegar í fjölmiðlum. Mest er vísað til tillagna á sviði menningartengdrar fjárfestingar. Talað um kjördæmapot og sitthvað annað álíka geðslegt. Þetta er fráleitt. Þannig vill nú bara til að undangengin ár hefur verið lögð áhersla á uppbyggingu ýmiss konar menningartengdrar starfsemi úti á landsbyggðinni. Söfn eru gott dæmi um það. Varðveisla gamalla húsa með menningarsögulegt gildi er annað. Þetta er eðlilegt. Þessi þáttur hefur lengið legið eftir úti á landsbyggðinni. Uppbygging af þessu tagi er hins vegar mikil lyftistöng og eftir henni leitað í byggðunum. Aukinheldur er hér um að ræða svar við þeirri stefnumótun sem Tómas Ingi Olrich, nú menntamálaráðherra og forveri minni í formennsku Ferðamálaráðs, hafði forgöngu um í ítarlegri skýrslu um menningartengda ferðaþjónustu.
Úti um allt land sjáum við góð dæmi um vel heppnaða uppbyggingu af þessu tagi. Síst er því of mikið að gert á þessu sviði. Hér er nefnilega á ferðinni gott dæmi um starfsemi sem er menningarleg í eðli sínu og leiðir jafnframt til skemmtilegrar og fjölþættrar atvinnusköpunar. Vilji menn kalla það kjördæmapot, já gott og vel. Slíkt kjördæmapot er hól í eyrum þess sem hér stýrir lyklaborði tölvunnar.
Prýðir fyrir héruðin og eflir samfélagsmyndina
Það er eins og menn gleymi því að við landsbyggðarþingmenn þurfum mikið á okkur að leggja til þess að stuðla að slíkri uppbyggingu. Hér róum við gegn straumi vanans og vanahugsunar. Það má hins vegar bara verða til þess að við herðum þennan róður. Við vitum að uppbygging á sviði menningarmála skiptir miklu máli fyrir okkur í framtíðinni. Fólk kallar eftir fjölbreyttari lífsháttum. Kannanir sýna að nauðsynlegt er að hyggja sérlega vel að þessum málum, til þess að ná góðum árangri í byggðamálum. Fjárfesting upp á fáeinar milljónatugi á ári í þessum efnum skilar sér margfaldlega fyrir samfélagið. Það er enginn vandi að reikna út til krónu og aura.
Uppbygging þjóðargersema út um allt land er óbrotgjarn minnisvarði sem prýðir héruðin og stælir samfélagsmyndina. Við höldum því áfram á þessum kúrsi
