Pistlar
Fólk víðs vegar úr kjördæminu hvetur til stuðnings
Í Morgunblaðinu í dag eru birtar fjórar greinar þar sem lýst er yfir stuðningi við Einar K. Guðfinnsson vegna prófkjörsins á morgun.
Þannig segir Tryggvi Ársælsson skiptstjóri á Tálknafirði: "Einar Kristinn er heiðarlegur og vinnusamur maður og hefur ávallt lagt mikið upp úr því að hafa samráð við bakland sitt"
Björn Bjarki Þorsteinsson bæjarfulltrui í Borgarbyggð segir í sinni grein: Fylkjum liði sjálfstæðismenn góðir og tryggjum Einari Kristni gott veganesti á laugardaginn kemur."
Gunnar Bergmann Traustason sölustjóri á Fiskmarkaði Íslands í Snæfellsbæ segir: " Einar hefur ekki alltaf farið troðnar slóðir, en hins vegar haft að leiðarljósi að berjast fyrir hagsmunum sjávarútvegsins og þar með staðið vörð um byggðirnar úti um landið sem byggjast á sjávarútvegi"
Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri í Bolungarvík segir í sinni grein: "Með Einar Kristin í forystusveit hins nýja kjördæmis er víst að við eigum traustan, töulan og heiðarlegan málsvara.
Áður hafði birst grein eftir Elínbjörgu Magnúsdóttur verkalýðsleiðtoga á Akranesi, þar sem hvatt er til stuðnings við Einar, í Morgunblaðinu í síðustu viku
Nánar má lesa þessar greinar með því að smella á þær hér á heimasíðunni undir fyrirsögninni greinar
